![]() |
|
Bílaleiga Akureyrar - Höldur ehf er stærsta bílaleiga landsins með um 2400 bíla í rekstri. |
|
Fyrirtækið var stofnað árið 1974, en upphaf Bílaleigu Akureyrar má rekja aftur til ársins 1966 eins og lesa má um í sögu fyrirtækisins hér til hliðar. Bílaflotinn í dag er bæði stór og fjölbreyttur enda keypti Bílaleiga Akureyrar um 23% af seldum nýjum bílum á Íslandi árið 2010. Við val á sérhverjum nýjum bíl sem keyptur er horfum við mjög til CO2 losunar og eldsneytiseyðslu viðkomandi bíls. Það endurspeglar áherslur fyrirtækisins í umhverfismálum. Rík áhersla er ávallt lögð á gott úrval vel útbúinna bíla, allt frá litlum fólksbílum, stóru jeppum, 7-17 sæta smárútum, vönduðum lúxusbílum og sendibílum í mörgum stærðum. Bílaleiga Akureyrar er brautryðjandi í íslenskum bílaleigurekstri með 16 afgreiðslustaði hringinn í kringum landið. Þessi fjöldi útleigustöðva gerir viðskiptavinum okkar hægt um vik að leigja bíl á einum stað og skila á öðrum. Góð þjónusta og sveigjanleiki er okkar aðalsmerki. Bílaleiga Akureyrar er fyrsta og eina bílaleigan á Íslandi til þess að hljóta vottun samkvæmt gæðastaðlinum ÍST ISO 9001 og umhverfisstjórnunarstaðlinum ÍST ISO 14001. Bílaleiga Akureyrar er umboðsaðili Europcar bílaleigukeðjunnar á Íslandi og þjónustar einnig viðskiptavini National og Alamo bílaleigukeðjanna á Íslandi. Þá rekur fyrirtækið einnig alhliða bílaþjónustu á Akureyri. Má þar nefna nýlegt og fullkomið dekkjaverkstæði ásamt bílaþvottastöð við Glerártorg, bílasölu að Þórsstíg 2 og öflugt bílaverkstæði að Draupnisgötu 1 þar sem boðið er upp á allar almennar bílaviðgerðir, réttingu, sprautun og tjónaskoðun. Fyrirtækið er sölu og þjónustuaðili á norðurlandi fyrir Heklu, Öskju, Bernhard og Seglagerðina Ægi. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins er í dag um 120 og um 160 á háannatíma í ferðaþjónustu. |
|
|




