Bílaleiga Akureyrar er í hópi fyrstu fyrirtækja tl að fá afhentan Vakann, Gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar.
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri afhenti fyrstu fjórum fyrirtækjunum Vakann við hátíðlega athöfn þann
4.júlí 2012.
Bílaleiga Akureyrar hefur um langt skeið verið leiðandi fyrirtæki í íslenskum bílaleigurekstri og við erum ákaflega stolt
af þessari viðurkenningu. Kerfinu er ætlað að auka öryggi og efla gæði og fagmennsku á sviði ferðaþjónustu.
Gæðakerfið
felur meðal annars í sér viðameiri úttekt á starfsemi íslenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu en áður hefur
þekkst hér á landi.


