Metanbílar hjá Bílaleigu Akureyrar


VW Passat EcoFuel

Volkswagen Passat og Caddy metanbílar til útleigu.

Bílaleiga Akureyrar hefur á boðstólnum Volkswagen EcoFuel bíla, búna tvíbrennihreyfli. Þessi tækni sameinar afkastamikla forþjöpputækni (afgasforþjöppu og vélræna forþjöppu) og búnað til að brenna metani. Volkswagen er fyrsti framleiðandi í heimi sem býður slíka vél í sína bíla.

Metanbílar spennandi valkostur.
Sem dæmi þá þarf 113 svona metanbíla til að ná sama Co2 útblæstri og af einum hefðbundnum bensínbíl og er þá um líftímaútreikning að ræða. Það metan sem ekki er brennt á bílvélum, verður hvort sem er til á urðunarstað og fer út í andrúmsloftið. Með notkun þess á bílvélar sparast það koldíoxíð sem að öðrum kosti verður til við bruna þess eldsneytis sem metanið kemur í staðinn fyrir. Faglegur ágreiningur um ávinninginn af notkun Metan er enginn. Önnur helstu rökin fyrir metannotkun eru um 30% minni eldsneytiskostnaður auk þess sem Metan er innlent eldsneyti og sparar því gjaldeyri.

Hvað er svona magnað við íslenskt metan?
Íslenskt metan eldsneyti verður til úr gróðurhúsalofttegundum sem myndast við gerjun lífræns úrgangs á urðunarstað SORPU bs. í Álfsnesi. Framleiðsla SORPU bs. kemur því í veg fyrir að óæskilegar gróðurhúsalofttegundir losni út í andrúmsloftið frá urðunarstað. Eftir tíu ára þróun er framleiðslan nú í hæsta gæðaflokki, með allt að 98% hreinleika. Með notkun á íslensku metani í stað bensíns og dísilolíu, má stuðla að umtalsvert minni losun gróðurhúsalofttegunda í tvennum skilningi; annars vegar með umhverfisvænni útblæstri í akstri og hins vegar með minni losun skaðlegra efna frá urðunarstað. Segja má með sanni að nýting á íslensku metani við akstur hafi í för með sér mikil og jákvæð umhverfisáhrif og stuðli að hreinna andrúmslofti.

Hvernig fer áfylling fram?
Eins og áður segir er Íslenskt metan unnið úr hauggasi frá Sorpu bs, en fyrirtækið N1 annast sölu þess. Sölueiningar eru mældar í rúmmetrum en 1 m3 af metani jafngildir í orku 1,12 lítrum af 95 oktana bensíni. Áfyllingin fer fram undir þrýstingi og tekur svipaðan tíma og áfylling hefðbundins eldsneytis.

Þjónustustöð N1, Bíldshöfða 2, Reykjavík er með áfyllingastöð fyrir Metan.

Opnunartímar:
Mánudaga - föstudaga 7:00 - 23:30
Sunnudaga 9 - 23:30

Metanbílarnir eru til útleigu í Skeifunni 9.



    



VW Caddy EcoFuel


Þar sem íslenskt metan er unnið úr lífrænum efnum, verður engin aukning koltvísýrings í andrúmsloftinu við bruna þess.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning