Meira en merkið okkar er grænt...
 
 Umhverfisvottun
Bílaleiga Akureyrar er fyrsta bílaleigan á Íslandi til að öðlast vottun samkvæmt alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001.

Þann 13. janúar 2010 fékk Bílaleiga Akureyrar vottun samkvæmt ISO 14001. Vottunin nær til allrar starfsemi Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni 9, þar með talið skrifstofu, afgreiðslu, bifreiðaverkstæðis og þjónustudeildar bifreiða. Vottunin tekur einnig til starfstöðva fyrirtækisins á Reykjavíkurflugvelli og í flugstöð Leifs Eiríkssonar.

 Umhverfisstefna

Stjórnendum Bílaleigu Akureyrar er vel kunnugt um neikvæð umhverfisáhrif af rekstri bifreiða og vilja þeir leggja sitt að mörkum til að draga úr þeim áhrifum eins og kostur er. Bílaleiga Akureyrar ætlar að vinna að bættri nýtingu auðlinda og stuðla þannig að sjálfbærri þróun.

Lesa meira

 Umhverfisskýrslur

Rétt eins og fjárhagsbókhald fyrirtækis er umhverfisbókhald hluti af stærri mynd. Það er mikilvægt stjórntæki í markvissu umhverfisstarfi. Umhverfisbókhald er tæki eða verkfæri til að skrá og sýna mælanleg áhrif starfseminnar þannig að stjórnendur fyrirtækisins og almenningur geti áttað sig á umhverfislegri þróun rekstursins. Í framhaldi af því eru sett markmið, unnið að umbótum og fylgst með þróuninni.

Lesa meira


 Leiðbeiningar fyrir verktaka

Bílaleiga Akureyrar leggur mikla áherslu á gæða,- umhverfis-og öryggismál í rekstri sínum. Fyrirtækið starfar samkvæmt gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001 og umhverfisstjórnunar- staðlinum ISO 14001 en vottun fékk fyrirtækið þann 13. Janúar 2010. Í skjalinu sem hægt er að nálgast hér fyrir neðan eru settar fram leiðbeiningar og þær kröfur sem gerðar eru til verktaka og annarra þjónustuaðila hvað varðar umhverfis-og öryggismál.

Sækja leiðbeiningar


 Landgræðsluverkefni

Starfsfólk Bílaleigu Akureyrar hefur á undanförnum árum unnið markvisst að gróðursetningu á Hólasandi í Þingeyjarsýslu en upphaf gróðursetningar í nafni fyrirtækisins má rekja allt aftur til ársins 1995. Á Hólasandi vaxa nú og dafna á sjöunda þúsund plöntur. Við erum stolt af litla skóginum okkar og erum hvergi nærri hætt að hlúa að honum og stækka.


 Græn akstursráð!

Eins og segir í umhverfisstefnu okkar er eitt af markmiðum okkar að draga úr útblæstri flota fyrirtækisins. Með reglubundnu viðhaldi og þjónustu höldum við flota okkar í bestu orkunýtingu. Með því að fylgja „grænu“ aksturs ráðleggingunum getur þú bætt eldsneytisnýtinguna og hjálpað okkur að minnka hin neikvæðu umhverfisáhrif sem akstur bifreiða hefur í för með sér og skapað grænni framtíð.

Lesa meira


 Umhverfisvænir bílar

Segja má með sanni að nýting á íslensku metani við akstur hafi í för með sér mikil og jákvæð umhverfisáhrif og stuðli að hreinna andrúmslofti. Við leitum markvist leiða til að minnka útblástur frá bílaflota okkar

Lesa meira


 Berum virðingu fyrir íslenskri náttúru.

Margbrotin náttúra Íslands er eitt helsta aðdráttarafl okkar sem ferðumst um landið. Landið er víða viðkvæmt fyrir ágangi og gáleysislegur akstur getur valdið skemmdum á náttúrunni sem eru ár eða jafnvel áratugi að ganga til baka. Bílaleiga Akureyrar hvetur viðskiptavini sína til að ferðast um landið með virðingu fyrir íslenskri náttúru að leiðarljósi og aka aðeins vegi og merkta slóða en ekki utan þeirra.

 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning