![]() | |||
| Meira en merkið okkar er grænt... | |||
| Umhverfisvottun Bílaleiga Akureyrar er fyrsta bílaleigan á Íslandi til að öðlast vottun samkvæmt alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Þann 13. janúar 2010 fékk Bílaleiga Akureyrar vottun samkvæmt ISO 14001. Vottunin nær til allrar starfsemi Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni 9, þar með talið skrifstofu, afgreiðslu, bifreiðaverkstæðis og þjónustudeildar bifreiða. Vottunin tekur einnig til starfstöðva fyrirtækisins á Reykjavíkurflugvelli og í flugstöð Leifs Eiríkssonar. | ![]() | ||
Umhverfisstefna Stjórnendum Bílaleigu Akureyrar er vel kunnugt um neikvæð umhverfisáhrif af rekstri bifreiða og vilja þeir leggja sitt að mörkum til að draga úr þeim áhrifum eins og kostur er. Bílaleiga Akureyrar ætlar að vinna að bættri nýtingu auðlinda og stuðla þannig að sjálfbærri þróun. | ![]() | ||
Umhverfisskýrslur Rétt eins og fjárhagsbókhald fyrirtækis er umhverfisbókhald hluti af stærri mynd. Það er mikilvægt stjórntæki í markvissu umhverfisstarfi. Umhverfisbókhald er tæki eða verkfæri til að skrá og sýna mælanleg áhrif starfseminnar þannig að stjórnendur fyrirtækisins og almenningur geti áttað sig á umhverfislegri þróun rekstursins. Í framhaldi af því eru sett markmið, unnið að umbótum og fylgst með þróuninni. | ![]() | ||
Landgræðsluverkefni Starfsfólk Bílaleigu Akureyrar hefur á undanförnum árum unnið markvisst að gróðursetningu á Hólasandi í Þingeyjarsýslu en upphaf gróðursetningar í nafni fyrirtækisins má rekja allt aftur til ársins 1995. Á Hólasandi vaxa nú og dafna á þriðja þúsund plöntur. Við erum stolt af litla skóginum okkar og erum hvergi nærri hætt að hlúa að honum og stækka. | ![]() | ||
Græn akstursráð! Eins og segir í umhverfisstefnu okkar er eitt af markmiðum okkar að draga úr útblæstri flota fyrirtækisins. Með reglubundnu viðhaldi og þjónustu höldum við flota okkar í bestu orkunýtingu. Með því að fylgja „grænu“ aksturs ráðleggingunum getur þú bætt eldsneytisnýtinguna og hjálpað okkur að minnka hin neikvæðu umhverfisáhrif sem akstur bifreiða hefur í för með sér og skapað grænni framtíð. | ![]() | ||
Flýtilyklar
Leit
| | ||||||||||
| | ||||||||||
| | ||||||||||
![]() | ||||||||||
VOTTANIR | ||||||||||
![]() | ||||||||||
![]() | ||||||||||
FYLGDU OKKUR | ||||||||||
| | ||||||||||
| Bílaþjónusta á Akureyri: | ||||||||||
| Bílasala | ||||||||||
| Bílaverkstæði | ||||||||||
| Dekkjaverkstæði | ||||||||||
![]() |











