Bílaleiga Akureyrar - Höldur ehf, sendibílaleiga, bílaleigubílar erlendis, góð þjónusta um land allt, brúðarbílar, fólksbílar, jeppar og smárútur, mikið úrval.
Book online with the largest car rental in Iceland. International franchisee for Europcar, National and Alamo. Founded in 1966 we offer great variety of passenger cars, SUV´s, 4x4 jeeps, Minibuses, 12-15 seater vans, 4x4 campers, Motorhomes and Luxury cars suiting every need and any task. 14 car rental locations around Iceland make one way rentals easy. Reliable service and resonable rates. Renting a car in Iceland. Car rentals in Reykjavik, 4x4 islandia.
Umhverfisstefna Bílaleigu Akureyrar |
Stjórnendum Bílaleigu Akureyrar er vel kunnugt um neikvæð umhverfisáhrif af rekstri bifreiða og vilja þeir leggja sitt að mörkum til að draga úr þeim áhrifum eins og kostur er. Bílaleiga Akureyrar ætlar að vinna að bættri nýtingu auðlinda og stuðla þannig að sjálfbærri þróun. Með þetta að leiðarljósi hefur fyrirtækið einsett sér að vinna að stöðugum umbótum í umhverfismálum til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sem rekstur bílaleigu hefur í för með sér. |
| |
 |
| |
Bílaleiga Akureyrar ætlar að:
|
- Tryggja að starfsfólk hljóti þjálfun og sé upplýst um umhverfisþætti fyrirtækisins og að alltaf sé farið að lögum og reglugerðum um umhverfismál.
- Minnka útblástur frá bílaflota fyrirtækisins. Það verður gert með því að taka mið af útblæstri CO2 við innkaup á nýjum bifreiðum.
- Flokka þann úrgang sem til fellur hjá fyrirtækinu og virkja starfsfólk til betri nýtingar hráefna og endurnotkunnar sé þess kostur.
- Vinna að vöktun umhverfisþátta samkvæmt ISO 14001
- Upplýsa viðskiptavini sína um orkusparandi akstur og umgengni við náttúru landsins.
- Halda grænt bókhald og gefa árlega út umhverfisskýrslu til að upplýsa almenning um stöðu umhverfismála hjá fyrirtækinu.
- Styðja landgræðsluverkefni á Íslandi.
|
| |
 |
| |
Auk beinna áhrifa...
|
vona stjórnendur fyrirtækisins að gott fordæmi í umhverfismálum verði öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu, stofnunum og almenningi hvatning til að leggja áherslu á umhverfismál og sjálfbæra þróun. Það er skylda okkar að axla ábyrgð og huga að framtíð komandi kynslóða. |
Til baka á forsíðu.
|