Rétting og sprautun

Á bílaverkstæði Hölds er vel búið réttinga og sprautuverkstæði þar sem áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð. Verkstæðið er vottað af Bílgreinasambandinu

Rétting og sprautun

Á bílaverkstæði Hölds er vel búið réttinga og sprautuverkstæði þar sem áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð. Verkstæðið er vottað af Bílgreinasambandinu sem viðurkennt réttinga og sprautuverkstæði.

Við leggjum mikið upp úr því að vanda til verka og að bifreiðin líti eins út eftir viðgerð hjá okkur og hún gerði fyrir tjón. Til að svo megi vera notum við einungis hágæða efni og tækjabúnað.

Við bjóðum einnig upp á tjónamat samkvæmt CABAS matskerfinu. Það kerfi er viðurkennt af öllum tryggingafélögum á Íslandi og því geta viðskiptavinir okkar komið áhyggjulausir með bílinn til okkar ef þeir verða fyrir því óláni að lenda í tjóni.

  Bíll í sprautuklefa

Viðurkennt og vottað tjónamat, rétting og sprautun fer allt fram undir einu þaki hjá bílaverkstæði Hölds. Það er því góður valkostur að koma til okkar ef þú verður fyrir tjóni þar sem öll þjónustan fer fram á sama stað - einfalt og þægilegt.

Allt fyrir bílinn þinn!

Bíll pússaður á sprautuverkstæði Rétting á réttingaverkstæði Undirbúningur fyrir sprautun Sprautun í sprautuklefa


Höldur óskar eftir að ráða bifvélavirkja og bifreiðasmiði til starfa.
Til að sækja um starf smelltu hér!


 

 

 


Höldur ehf · Kt. 651174-0239 · Tryggvabraut 12 · 600 Akureyri