Lentir þú í umferðaróhappi með bílinn þinn, áttu rétt á bílaleigubíl í gegnum tryggingafélag á meðan viðgerð stendur?
Upplýsingar fyrir tjónþola:
Leigutaki þarf sjálfur að fá staðfest frá viðkomandi tryggingafélagi / verkstæði að hann eigi rétt á bílaleigubíl, sem og dagafjölda.
Leigutaki ber ábyrgð á bifreiðinni á leigutíma samkvæmt ákvæðum leiguskilmála um skyldur leigutaka.
Innifalinn er 100 km akstur á dag og kaskótrygging (CDW) með 195.000,- kr. sjálfsábyrgð. Valkvæð Súper kaskótrygging (SCDW) lækkar sjálfsábyrgð enn frekar.
Bílaleigubílar eru afhentir með fullan tank af eldsneyti og ber leigutaka að skila bifreið þannig að leigu lokinni.
Tryggingafélög greiða fyrir leigu á minnstu gerð bíla í A flokki meðan á eðlilegum viðgerðartíma stendur.
Leigutaki er ábyrgur fyrir greiðslu á þeim dögum sem ekki fást samþykktir hjá viðkomandi tryggingafélagi.
Tryggingafélögin greiða ekki fyrir bílaleigubíl ef bið er eftir varahlutum eða ef óeðlilegar tafir verða á viðgerð.