Fyrirtækið var stofnað árið 1974, en upphaf Bílaleigu Akureyrar má rekja aftur til ársins 1966 eins og lesa má um í sögu fyrirtækisins. Bílaflotinn í dag er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið einn umsvifamesti kaupandi nýrra bíla á Íslandi undanfarin ár. Við val á sérhverjum nýjum bíl sem keyptur er horfum við mjög til CO2 losunar og eldsneytiseyðslu viðkomandi bíls. Það endurspeglar áherslur fyrirtækisins í umhverfismálum. Rík áhersla er ávallt lögð á gott úrval vel útbúinna bíla, allt frá litlum fólksbílum, stórum jeppum, 7-17 sæta smárútum, vönduðum lúxusbílum og sendibílum í mörgum stærðum.
Fjöldi útleigustöðva gerir viðskiptavinum okkar hægt um vik að leigja bíl á einum stað og skila á öðrum. Góð þjónusta og sveigjanleiki er okkar aðalsmerki. Bílaleiga Akureyrar er fyrsta og eina bílaleigan á Íslandi til þess að hljóta vottun samkvæmt gæðastaðlinum ÍST ISO 9001 og umhverfisstjórnunarstaðlinum ÍST ISO 14001. Bílaleiga Akureyrar er umboðsaðili Europcar bílaleigukeðjunnar á Íslandi.
Þá rekur fyrirtækið einnig alhliða bílaþjónustu á Akureyri. Má þar nefna dekkjaverkstæði ásamt bílaþvottastöð við Glerártorg, bílasölu með nýja og notaða bíla að Þórsstíg 2 ásamt glæsilegu bíla- og tjónaviðgerðaverkstæði í 2300 fermetra húsnæði að Þórsstíg 4. Höldur er sölu- og þjónustuaðili á norðurlandi fyrir bílaumboðin Heklu og Öskju.
Um 280 starfsmenn starfa að jafnaði hjá fyrirtækinu í dag.