Raf, tvinn- og tengiltvinnbílar eru visthæfir valkostir
Við bjóðum upp á ýmsa spennandi valkosti í flokki visthæfra bifreiða en höfum lagt áherslu á hreina rafbíla og tengiltvinnbíla auk hybrid bifreiða.
Tvinnbílar (Hybrid) eru knúnir bæði rafmótor og bensín-eða dísilmótor sem vinna saman að því markmiði að lágmarka eldsneytiseyðslu á hverjum tíma. Eldsneytismótorinn hleður inn á rafhlöðuna þegar hann er í notkun en einnig hleðst inn á rafhlöðuna þegar bremsað er. Rafmagnið er nýtt þegar ekið er af stað eða ef ekið er á jöfnum hraða en eldsneytið kemur inn þegar raforkan dugar ekki ein og sér til að knýja bílinn áfram. Ekki er hægt að hlaða Tvinnbíla með því að stinga þeim í samband.
Tengiltvinnbílar / Plug-in Hybrid (PHEV) eru bæði knúnir af rafmótor og bensín-eða dísilvél og hægt er að hlaða rafhlöðuna með því að stinga bílnum í samband við hleðslustöð. Þetta er góður kostur fyrir þá sem yfirleitt aka stuttar vegalengdir en vilja ekki vera eingöngu háðir rafmagni á lengri vegalengdum og geta þá nýtt hefðbundið eldsneyti, bensín eða diesel. Drægni okkar tengiltvinnbíla á rafmagni er á bilinu 30-60 kílómetrar á einni hleðslu. Við gerum okkar besta til að hafa tengiltvinnbíla okkar full hlaðna við útleigu en getum því miður ekki lofað því eins og staðan er í dag.
Dæmi um tengiltvinn bíla:
Hleðsla tengiltvinnbílar fer fram á sama hátt og rafbíla en þó er mikilvægt að nefna það að þessir bílar taka flestir ekki hraðhleðslu og því ekki hægt að nota hraðhleðslustöðvar við hleðslu. Eina undantekningin í okkar flota er MMC Outlander PHEV, en þrátt fyrir að hann taki hraðhleðslu mælum við með því að þeir séu hlaðnir með fasttengdri hleðslustöð eða öruggum tengli.
Rafbílar ganga eingöngu fyrir rafmagni og þróun þeirra tekur talsverðum breytingum ár frá ári. Þrátt fyrir að drægni þeirra sé alltaf að aukast kallar þessi kostur á meira skipulag og forsjárhyggju við notkun, sérstaklega í lengri ferðum. Rafbílar okkar eru með raundrægni á bilinu 100-400 kílómetra á einni hleðslu, allt eftir bílum og aðstæðum hverju sinni.
Það er ekki svo ósvipað að keyra rafbíl og hefðbundin sjálfskiptan bíl. Það fyrsta sem þú tekur mögulega eftir er að vélarhljóð er ekkert auk þess sem rafmótorinn er algerlega stiglaus.
Dæmi um rafbíla í boði hjá Bílaleigu Akureyrar:
Drægni rafbíla fer eftir stærð rafhlöðu og orkunotkun og framleiðendur í dag gefa upp áætlaða drægni í kílómetrum samkvæmt WLTP staðlinum. Hins vegar þarf að hafa í huga að uppgefin drægni frá framleiðendum er aðeins til viðmiðunar og ekki er hægt að treysti henni, allavega ekki við íslenskar aðstæður. Það eru fjölmargir þættir sem geta haft áhrif á drægni, þar á meðal:
Flestir nýir rafbílar sýna orkunotkun út frá meðaltali yfir ákveðin tíma og rauntímanotkun á hverju augnabliki og sýna hversu marga kílómetra hægt er að keyra á þeirri hleðslu sem eftir er á rafhlöðunni hverju sinni. Hins vegar þarf að fylgjast vel með stöðu hleðslu því hún getur breyst umtalsvert á stuttum tíma ef aðstæður sem hafa áhrif á drægnina breytast. Við reynum að tryggja að allir 100% rafbílar okkar séu með um 70-80% hleðslu við afhendingu.
Drægni rafbíla er minni úti á þjóðvegum og þar er lengra á milli hleðslustöðva. Það er því sérstaklega mikilvægt að fylgjast með drægni og staðsetningu á hleðslustöðvum þegar eknar eru lengri vegalegndir utan þéttbýlis.
Í flestum rafbílum er hægt að stilla á mismunandi aksturskerfi (driving mode) og þó svo að þær geti verið mismunandi eftir bílum er yfirleitt hægt að velja milli t.d. Sport, Normal og Eco/Eco+ (vistvæn). Munað getur tugum kílómetra í drægni eftir því hvaða stilling er notuð og Eco er sú sem gefur mesta drægni.
Ef tvísýnt er hvort áfangastað eða næstu hleðslustöð verði náð er mikilvægt að minnka orkunotkun eins og kostur er. Slökktu á útvarpi og miðstöð ef hægt er og haltu jöfnum hraða milli 80 og 85 km á klst.
Ef hleðsla á rafbíl klárast er ekki hægt að keyra hann og þá þarf að sækja bílinn á sérstökum bílaflutningabíl og koma honum í hleðslu. Leigutaka ber að tilkynna Bílaleigu Akureyrar ef rafbíll verður rafmagnslaus og ber leigutaki allan kostnað sem hlýst af flutningi á verkstæði eða hleðslustöð.
Við mælum með hleðslu annað hvort með svokallaðir heimahleðslustöð 22kW eða hraðhleðslustöð 50-100 kW. Hraðhleðslustöðvar eru aðgengilegar víða um land og við bendum á hleðslustöðvar Ísorku og ON en hjá báðum þessum fyrirtækjum hægt að hlaða án hleðslulykils á auðveldan hátt. Hjá Ísorku er það gert með Ísorku appinu en hjá ON er það í gegnum QR kóða á hleðslustöðvum ON. Stærri notendum bendum við á að skrá sig hjá Plugsurfing, Ísorku eða ON og sækja sér hleðsluapp eða hleðslulykil. Hleðslulyklar fylgja ekki með rafbílum Bílaleigu Akureyrar.
Við mælum með að alltaf séu notaðar viðurkenndar, fasttengdar hleðslustöðvar við hleðslu rafbíla. Hleðslustöðvar sem þessar eru orðnar nokkuð algengar við fyrirtæki, heimahús og á ýmsum opinberum stöðum og þær eru með áföstum hleðslukapli eða með tengi fyrir lausan hleðslukapal. Algengt er að þessar stöðvar séu 22kW og þær henta mjög vel til hleðslu rafbíla og tengiltvinnbíla. Reikna má með að það taki 5-10 klst. að fullhlaða flesta rafbíla en 3-4 klst ef um tengiltvinnbíla er að ræða.
Hleðslutími fer eftir hleðslugetu bíls þ.e.a.s. hversu mikið rafmagn þeir geta tekið inn á sig í AC hleðslu og stærð rafhlöðu. Flestir rafbílar eru með 7-11 kW hleðslugetu í AC hleðslu en tengiltvinnbílar 3,3 - 3,7 kW hleðslugetu.
DC hraðhleðsla eru sérhæfðar hraðhleðslustöðvar með áföstum hleðslukapli. 50 kW hraðhleðslustöðvar eru algengar en stærri hleðslustöðvum 100-150 kW fjölgar ört. Fjölmörg fyrirtæki starfrækja hraðhleðslustöðvar en til að nota þessar stöðvar þarf sá sem notar stöðina að vera skráður notandi, annaðhvort í gegnum app eða með hleðslulykil. Ekki er hægt að greiða fyrir hraðhleðslu með greiðslukorti eða snertilaust með síma.
Önnur hleðsla / Heimahleðsla með sérstöku hleðslutæki frá framleiðanda bifreiða (hentar rafbílum og tengiltvinnbílum)
Notast er við staðlaða allt að 32A jarðtegnda tengla t.d. sem ætlaðir eru stórum heimilistækjum eins og þvottavélum. Aðeins má nota hleðslukapall/hleðslutæki með sérstöku stjórnboxi sem fylgir flest.um raf-og tengiltvinnbílum frá framleiðanda
Huga þarf sérstaklega að því að hefðbundnir 16A tenglar til heimilsnota henta ekki til hleðslu rafbíla. Slík notkun getur haft í för með sér ofhitnun og bruna og þess vegna mælum við alltaf með notkun hleðslustöðva eins og talað var um hér ofar.
Einnig bendum við á upplýsingar á vef húsnæðis og mannvirkjastofnunar.