Stefna um sjálfbæra þróun og samfélagslega ábyrgð

Sjálfbær þróun er þróun sem mætir þörfum nútímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum.

Höldur ehf. leggur áherslu á að starfsemin sé í sátt við samfélagið og umhverfið í heild. Fyrirtækið leggur sig fram við að leita stöðugt leiða til umbóta í átt að sjálfbærni og vill þannig axla ábyrgð á þeim áhrifum sem rekstur fyrirtækisins hefur. Með það að leiðarljósi greinir fyrirtækið áhrif sín á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti og vinnur að því að draga úr neikvæðum áhrifum og auka þau jákvæðu áhrif sem reksturinn hefur á innra og ytra umhverfi sitt.

Fyrirtækið leggur ekki aðeins áherslu að auka sjálfbærni í sinni kjarnastarfsemi heldur vill fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að auka sjálfbærni í samfélaginu í heild, m.a. með því að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á landi.

Umhverfisþættir

Höldur leggur áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda og lágmörkun úrgangs og losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrirtækið vinnur að stöðugum umbótum í umhverfismálum til að lágmarka umhverfisáhrif af rekstri fyrirtækisins.

  • Höldur setur sér árleg markmið um hlutfallslega aukningu hreinorkubíla í bílaflota sínum.

  • Höldur flokkar úrgang og spilliefni sem til falla hjá fyrirtækinu.

  • Höldur stuðlar að aukinni umhverfisvitund starfsfólks.

  • Starfsfólk Hölds vinnur að landgræðslu með árlegri gróðursetningu.

Félagslegir þættir

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á jafnrétti, jafna möguleika til starfsþróunar og uppbyggilega fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður og samheldinn vinnustaður. Starfsfólk, þekking þeirra, færni og reynsla er verðmætasti auður félagsins. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri og starfsemi um land allt og mun áfram bjóða uppá starfstækifæri á landsbyggðinni og styðja við nærumhverfi sitt.

  • Höldur sýnir samfélagslega ábyrgð í verki gagnvart starfsfólki, viðskiptavinum og samfélaginu í heild.

  • Höldur vinnur markvisst að því að tryggja öryggi og efla heilbrigði starfsfólks.

  • Höldur hafnar öllu misrétti og leggur áherslu á að allt starfsfólk búi við jöfn réttindi og tækifæri innan fyrirtækisins.

  • Höldur ætlar að auka hlut kvenna innan fyrirtækisins og viðhalda launajafnrétti.

  • Höldur leggur áherslu á forvarnir og öryggi í samgöngum og nýtir stafræna tækni í upplýsingagjöf til viðskiptavina.

  • Höldur styður dyggilega við bakið á íþrótta- og menningarstarfi um land allt.

Stjórnarhættir

Höldur leggur áherslu á góða stjórnarhætti sem og hagkvæma og ábyrga nýtingu fjármagns. Stjórnendur og starfsfólk skulu viðhafa gott viðskiptasiðferði gagnvart viðskiptavinum, birgjum og öðrum hagsmunaaðilum. Traust og gott orðspor er félaginu mikilvægt. Góðir viðskiptahættir, virðing og hlíting laga og reglugerða eru þau grunngildi sem verklag félagsins byggir á.

  • Höldur mun gefa út árlega sjálfbærniskýrslu.

  • Höldur ætlar að skoða samstarf við birgja með sjálfbærni i huga.

Höldur vill sýna gott fordæmi í verki með því að vera leiðandi í orkuskiptum og umhverfismálum. Höldur vill tryggja fjölbreytt störf um land allt og skapa heilbrigt starfsumhverfi sem byggir á jafnrétti, virðingu og sterkri liðsheild.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun varða leiðina að bættum heimi. Lögð verður áhersla á að samþætta Heimsmarkmiðin við starfsemi fyrirtækisins.

Kjarnamarkmið Hölds eru: 

Heilsa og vellíðan
Jafnrétti kynjanna
Góð atvinna og hagvöxtur
Nýsköpun og uppbygging
Ábyrg neysla og framleiðsla
Aðgerðir í loftslagsmálum

Fyrirtækið setur sér árleg markmið sem tengjast kjarnamarkmiðunum og metur árlega árangur.

 

Stjórn félagsins samþykkir stefnuna og ber jafnframt ábyrgð á reglulegri endurskoðun hennar. Forstjóri er ábyrgur fyrir framkvæmd stefnunnar og hefur ásamt framkvæmdaráði félagsins yfirumsjón með sjálfbærniverkefnum.

Árangur í ljósi markmiða árið 2022 

 

Aukið hlutfall visthæfra ökutækja

Hlutfall visthæfra ökutækja, rafmagns og tengiltvinnbíla í bílaflota fyrirtækisins jókst úr 16,27% í 25% á árinu.
 
 

Aukning hleðsluinnviða

Fyrirtækið setti upp 10 hleðslustöðvar fyrir rafbíla á árinu 2022 og er með yfir 60 hleðslustöðvar við starfsstöðvar sínar víða um land.
 
 

Eigin gróðursetning

Upphaf gróðursetningar í nafni fyrirtækisins má rekja allt aftur til ársins 1995 en starfsfólk fyrirtækisins gróðursetti rúmlega 3000 tré árið 2022.
 
 

Dregið úr pappírsnotkun

Uppgjör bílasölu varð pappírslaust á árinu 2022.
 
 

Jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf

Félagið greiddi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.