Höldur - Bílaleiga Akureyrar sér ríkisfyrirtækjum og stofnunum áfram fyrir bílaleigubílum.

Bílaleiga Akureyrar hefur endurnýjað rammasamning við Ríkiskaup
Bílaleiga Akureyrar hefur endurnýjað rammasamning við Ríkiskaup

Nýverið var endurnýjaði Ríkiskaup rammasamning um bílaleigubíla við Bílaleigu Akureyrar. Bílaleiga Akureyrar uppfyllir öll skilirði samningsins um vistvæn innkaup enda fyrsta og eina bílaleigan á Íslandi til að öðlast vottun samkvæmt alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001

Bílaleiga Akureyrar er með aðalskrifstofu sína á Akureyri, en stærsta einstaka afgreiðslan er í Reykjavík. Í heild er fyrirtækið með útibú á 20 stöðum á landinu og á nokkrum stöðum eru fleiri en ein afgreiðsla, þ.e. bæði almenn skrifstofa og afgreiðsla á flugvelli.