Verðlaun frá Rentalcars.com

Frábær hópur starfsfólks í Keflavík með viðurkenninguna frá Rentalcars.com
Frábær hópur starfsfólks í Keflavík með viðurkenninguna frá Rentalcars.com

Starfsstöð Bílaleigu Akureyrar – Europcar á Keflavíkurflugvelli hlaut nýverið viðurkenningu frá Rentalcars.com sem eftirlætis bílaleiga viðskiptavina þeirra. Endurgjöf viðskiptavina leiddi í ljós að Bílaleiga Akureyrar – Europcar skoraði hærra en nokkur önnur bílaleiga á flugstöðvarsvæðinu. Við erum ákaflega stolt af þessari viðurkenningu, hún er okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut og kappkosta að veita ávallt bestu þjónustuna á íslenskum bílaleigumarkaði.