Tryggingar

Bílaleiga

Upplýsingar um tryggingar okkar og viðbótarverndir

 

Kaskótrygging (CDW)

Innifalið í leiguverði er lögboðin ökutækjatrygging gagnvart þriðja aðila ásamt kaskótryggingu. Eigin áhætta kaskótryggingar er kr. 250.000 fyrir fólksbíla og/eða kr. 450.000 fyrir jeppa og stærri bíla. Kaskótrygging (CDW) er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.

Slysatrygging ökumanns og farþega (PAI)

Slysatrygging ökumanns og farþega er hluti af lögboðinni skyldutryggingu ökutækis og er því innifalin í leiguverði. Hún bætir það slys sem ökumaður og/eða farþegar verða fyrir. Slysatrygging (PAI) er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.

Þjófnaðartrygging (TP)

Innifalin í leiguverði og tryggir þig gegn þjófnaði á ökutækinu. Tryggingin tekur þó ekki til þjófnaðar á persónulegum munum. Þjófnaðartrygging (TP) er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.

Súper kaskótrygging (SCDW)

Valkvæð trygging sem lækkar eigin áhættu leigutaka á grunn kaskótryggingunni (CDW) sem innifalin er í leiguverðinu. Sé þessi trygging valin þá lækkar eigin áhætta fólksbíla úr kr. 250.000 í kr. 60.000 og eigin áhætta jeppa og stærri bíla úr kr. 450.000 í kr. 110.000. Súper kaskótrygging (SCDW) er hluti af miðlungs - tryggingapakkanum okkar.

Framrúðugjald (GP)

Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði sem hljótast kann af völdum brotinnar framrúðu, brotinna aðalljósa og steinkasts. Sé gjaldið valið þá lækkar eigin kostnaður leigutaka sem gjaldið nær til niður í krónur núll. Framrúðgjald (GP) er hluti af miðlungs - pakkanum okkar.

Sand- og öskufoksgjald (SADW)

Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði af völdum sand- eða öskufoks. Ekkert annað gjald, trygging né vernd bætir slíkan kostnað. Gjaldinu er hægt að bæta við einu og sér og er það ekki í tengslum við neitt annað gjald, vernd eða tryggingu. Sand og öskufoksgjald (SADW) er hluti af úrvals - pakkanum okkar.

Engin eigin áhætta (ZERO)

Til að njóta engrar eigináhættu þarf að velja úrvals - tryggingapakka okkar. Þar eru innifaldar allar þær tryggingar og verndir sem taldar eru upp hér að ofan.


Tryggingapakkar:

Verð á tryggingapökkum

Miðlungsvernd

kr. 2.400 á dag fyrir fólksbíla
kr. 3.900 á dag fyrir jeppa og stærri bíla

Úrvalsvernd

kr. 4.450 á dag fyrir fólksbíla
kr. 6.500 á dag fyrir jeppa og stærri bíla




Höldur er dreifingaraðili trygginga fyrir VÍS