
Höldur-Bílaleiga Akureyrar býður fjölbreytt úrval sendibíla, flutningabíla og kassabíla til leigu á hagstæðu verði. Hvort sem þú ert að flytja húsgögn, sækja stærri vörur, flytja búslóð eða þarft sendibíl fyrir fyrirtækið þitt, hjálpum við þér að finna rétta bílinn fyrir verkefnið.
Veldu 4, 6 eða 24 tíma leigu og fáðu sendibíl sem hentar þínum þörfum. Í boði eru bæði litlir og stórir sendibílar, auk kassabíla með lyftu fyrir stærri og þyngri flutninga.

4 tíma leiga með 50 km frá 7.340 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 8.915 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 12.590 kr.

4 tíma leiga með 50 km frá 10.175 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 12.065 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 17.840 kr.

4 tíma leiga með 50 km frá 11.015 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 13.115 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 19.940 kr.

4 tíma leiga með 50 km frá 13.115 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 15.740 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 23.615 kr.

4 tíma leiga með 50 km frá 14.690 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 17.315 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 26.240 kr.

4 tíma leiga með 50 km frá 18.689 kr.
6 tíma leiga með 100 km frá 21.989 kr.
24 tíma leiga með 100 km frá 32.989 kr.
Fyrirvari: Hurðagöt geta verið þrengri en uppgefin hæð og breidd farangursrýmis.
Þú getur leigt sendibíl á útleigustöð okkar við Njarðargötu í Reykjavík, skammt frá Reykjavíkurflugvelli. Þar bjóðum við upp á fjölbreytt úrval sendibíla, flutningabíla og kassabíla ásamt aukabúnaði sem auðveldar flutninga, svo sem flutningskössum, trillum og flutningsbrettum.
Sendibílar í nokkrum stærðum eru einnig í boði á útleigustöð okkar við Tryggvabraut á Akureyri. Hvort sem þú ert að leita eftir að leigja sendibíl í Reykjavík eða sendibílaleigu á Akureyri getur Höldur boðið lausn sem hentar.
Það er einfalt að leigja sendibíl hjá Höldi-Bílaleigu Akureyrar. Hafðu samband í síma 461 6100 eða sendu okkur fyrirspurn á netinu. Við aðstoðum þig við að velja rétta stærð af sendibíl eða flutningabíl og staðfestum hvort viðeigandi bíll sé laus á þeim tíma sem hentar þér.
Við bjóðum bæði skammtímaleigu og langtímaleigu á sendibílum. Hvort sem þú þarft sendibíl í nokkra tíma, einn dag eða lengri tíma getum við fundið hagkvæma lausn fyrir verkefnið.
Vöru- og tröpputrillur frá 2.000 kr. á dag.
Flutningsbretti með hjólum frá 1.000 kr. á dag
Flutningskassar 10 í búnti frá 4.000 kr.


Margir velja að leigja sendibíl þegar flytja þarf búslóð, heimilistæki eða stærri húsgögn. Með réttum bíl verður flutningurinn bæði einfaldari og hagkvæmari.
Við bjóðum sendibíla og flutningabíla í mismunandi stærðum sem henta jafnt fyrir minni íbúðarflutninga sem og stærri búslóðaflutninga út á land. Starfsfólk okkar aðstoðar þig við að velja rétta bílinn út frá umfangi flutningsins.

Fyrirtæki þurfa oft sendibíla vegna tímabundinna verkefna, aukinna anna eða sérstakra flutninga. Höldur býður sérsniðnar lausnir fyrir fyrirtæki sem þurfa sendibíla til skemmri eða lengri tíma.
Hvort sem um er að ræða vörudreifingu, verkfæraflutninga, þjónustuverkefni eða daglegan rekstur getum við útbúið hagstæð tilboð sem henta þörfum hvers fyrirtækis.
Verð fer eftir stærð bíls og leigutíma. Verð fyrir hvern bílaflokk eru birt hér að ofan og hægt er að velja 4, 6 eða 24 tíma leigu. Við bjóðum einnig föst verðtilboð fyrir langtímaleigu á sendibílum, búslóðaflutninga og flutninga út á land.
Innifalið í leiguverðinu er lögboðin ökutækjatrygging gagnvart þriðja aðila ásamt kaskótryggingu. Eigin áhætta kaskótryggingar er 475.000 kr. Hægt er að kaupa viðbótartryggingar sem lækka sjálfsábyrgðina enn frekar. Skoða tryggingar →
Uppgefin verð eru með virðisaukaskatti og innifela tiltekinn akstur samkvæmt verðskrá. Greitt er sérstaklega fyrir umframakstur.
Eldsneyti er ekki innifalið í leiguverði. Sendibílar eru afhentir með fullan tank og skal skila þeim með fullan tank að leigu lokinni.
Kílómetraskattur hins opinbera er ekki innifalinn. Skatturinn er 6,95 kr. á km og umsýslugjald Hölds er 1,86 kr. á km, samtals 8,81 kr. fyrir hvern ekinn kílómetra. Gjaldið er innheimt við skil ökutækisins og reiknast út frá heildarakstri á leigutímanum.
Það fer eftir umfangi verkefnisins og því sem flytja þarf. Rúmmál farangursrýmis ásamt lengd, breidd og hæð er tilgreint við hvern bílaflokk til að auðvelda val á rétta bílnum. Við erum einnig ávallt tilbúin að aðstoða þig við að velja rétta stærð af sendibíl eða flutningabíl fyrir flutninga eða búslóðaflutninga.
Já, flokkar V20 og V30 eru einnig í boði á leigustöð okkar við Tryggvabraut á Akureyri.
Já, við gerum sérsniðin tilboð fyrir fyrirtæki sem þurfa sendibíla tímabundið eða til lengri tíma. Við bjóðum einnig hagstæð kjör fyrir langtímaleigu á sendibílum og flutningabílum.
Höldur-Bílaleiga Akureyrar er með sendibíla til leigu á leigustöð sinni við Njarðargötu í Reykjavík. Flokkar V20 og V30 eru einnig í boði á Akureyri við Tryggvabraut.
Það fer eftir stærð búslóðar. Fyrir minni flutninga duga oft V20 Large eða V30 flokkar, en fyrir stærri búslóðaflutninga henta stærri sendibílar og kassabílar betur. Starfsfólk okkar aðstoðar þig við að velja réttan bíl fyrir verkefnið.
Bílaleiga AkureyrarOpnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga á bílum | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti - Lagalegur fyrirvari.


