Hér finnur þú yfirlit yfir helstu aukagjöld sem geta fallið til vegna skammtíma- og langtímaleigu hjá Höldi. Gjöld geta meðal annars ráðist af tegund leigu, afhendingar- og skilastað, eknum kílómetrum, ástandi ökutækis við skil og þeirri viðbótarþjónustu sem valin er.
Ef fleiri en einn ökumaður ætlar að aka bílnum þarf að skrá viðkomandi sem auka ökumann á leigusamning.
Verð: 4.350 kr. fyrir alla leiguna
Flugvallargjald bætist við leigur sem hefjast eða enda á Keflavíkurflugvelli. Aðeins er greitt eitt gjald fyrir hverja leigu, einnig þegar bíllinn er bæði sóttur og honum skilað á Keflavíkurflugvelli.
Verð: 5.100 kr. fyrir hverja leigu
Flugvallargjald er lagt á leigur sem hefjast eða enda á innanlandsflugvöllum þar sem bílastæðagjöld Isavia hafa verið innleidd.
Verð: 2.100 kr. fyrir hverja leigu
Aukagjald er innheimt þegar bíll er sóttur utan hefðbundins opnunartíma.
Verð: 22.500 kr. fyrir hverja afhendingu
Einstefnugjald er innheimt þegar bíll er sóttur á einni starfsstöð og honum skilað á annarri.
Verð: 30.000 kr. fyrir hverja leigu
Gjald á ekki við þegar bíll er sóttur á Keflavíkurflugvelli og honum skilað í Reykjavík eða öfugt.
Hægt er að bæta barnastól við bókun. Í boði eru mismunandi stærðir eftir aldri og þyngd barns.
Verð: 900 kr. á dag
Aukagjald getur átt við vegna ungs ökumanns, eftir aldri og bílaflokki.
Verð: 1.800 kr. á dag
Í nýju kerfi sem tók gildi þann 1. janúar 2026 er kílómetragjald (kílómetraskattur) greitt fyrir notkun vega í stað olíu- og bensíngjalda sem falla niður. Kílómetraskattur hins opinbera er kr. 6,95 á km. Umsýslugjald Hölds er kr. 1,86 á km. Samtals kr. 8,81 á hvern ekinn kílómeter.
Skatturinn er innheimtur að leigu lokinni og tekur mið af heildarakstri á leigutíma.
Bíll er afhentur með fullan eldsneytistank og skal honum skilað fullum. Ef eldsneyti vantar við skil greiðir leigutaki kostnað við eldsneytið auk áfyllingargjalds.
Áfyllingargjald: 25% álag á dæluverð, að hámarki 2.500 kr.
Rafbílar eru afhentir með a.m.k. 75% hleðslu og skal skila þeim þannig. Ef bílnum er skilað með minna en 75% hleðslu er innheimt 100 kr. per kWst.
Aukagjald vegna þrifa getur fallið til þegar þörf er á sérstökum þrifum á ökutæki.
Reykingar, þar á meðal notkun rafretta, eru bannaðar í bílum Hölds. Gæludýr eru leyfð án sérstaks aukagjalds, en leigutaki ber ábyrgð á tjóni af þeirra völdum og getur þurft að greiða þrifagjald ef bílnum er ekki skilað hreinum og lausum við dýrahár.
Ef aukabúnaður sem sem leigður er með bíl glatast á leigutímanum gilda eftirfarandi gjöld:
Bíllykill: Verð getur verið á bilinu 50.000 - 150.000 kr. eftir framleiðanda og er hvert tilfelli skoðað sérstaklega.
Skráningarmerki: Verð: 15.000 kr.
Hleðslukapall rafbíls: Verð allt að: 60.000 kr.
Ef skipta þarf um hjólbarða gildir eftirfarandi verð fyrir einn hjólbarða:
|
Bílaflokkur |
Verð |
|---|---|
|
Litlir fólksbílar |
20.000 kr. |
|
Millistórir fólksbílar |
25.000 kr. |
|
Stórir fólksbílar |
30.000 kr. |
|
Lúxusfólksbílar |
60.000 kr. |
|
Litlir jeppar |
35.000 kr. |
|
Millistórir jeppar |
45.000 kr. |
|
Stórir jeppar |
60.000 kr. |
|
Litlir fólks- og sendibílar |
30.000 kr. |
|
Millistórir fólks- og sendibílar |
35.000 kr. |
|
Stórir fólks- og sendibílar |
40.000 kr. |
Kostnaður vegna dráttar á ökutæki fer eftir því hvar ökutækið er staðsett.
350 kr. á km, lágmarksgjald 35.000 kr.
450 kr. á km, lágmarksgjald 35.000 kr.
Akstur bílaleigubíla á vegum eða slóðum sem ekki hafa vegnúmer er bannaður. Sama gildir um vegi sem hefur verið lokað vegna aðstæðna. Stranglega bannað er að aka fólksbílum og eindrifsbílum á vegum sem eru F-merktir á opinberum kortum (hálendisvegir) ásamt Kjalvegi (vegur 35) og um Kaldadal (vegur 550).
Gjald vegna brots á þessum aksturstakmörkunum nemur samkvæmt leiguskilmálum eigináhættu kaskótryggingar: 265.000 kr.
Ef Höldur þarf að greiða sekt fyrir hönd leigutaka eða veita yfirvöldum upplýsingar vegna umferðarlagabrots er innheimt umsýslugjald.
Verð: 1.100 kr.
Bílastæðagjöld, veggjöld, sektir og önnur gjöld sem verða til vegna notkunar bílsins falla einnig á leigutaka.
Eftirfarandi gjöld eiga sérstaklega við um langtímaleigu.
Mikilvægt er að koma með bíl í þjónustu á réttum tíma. Ef farið er fram yfir tilskilinn þjónustutíma geta eftirfarandi gjöld fallið til:
|
Fram yfir þjónustu |
Gjald |
|---|---|
|
3.000 km eða 2 mánuðir |
10.000 kr. |
|
4.500 km eða 3 mánuðir |
25.000 kr. |
|
6.000 km eða 4 mánuðir |
45.000 kr. |
|
7.500 km eða 5 mánuðir |
70.000 kr. |
|
9.000 km eða 6 mánuðir |
100.000 kr. |
|
10.500 km eða 7 mánuðir |
135.000 kr. |
|
12.000 km eða 8 mánuðir |
175.000 kr. |
|
13.500 km eða 9 mánuðir |
220.000 kr. |
|
15.000 km eða 10 mánuðir |
270.000 kr. |
|
16.500 km eða 11 mánuðir |
325.000 kr. |
|
18.000 km eða 12 mánuðir |
385.000 kr. |
Verð: 15.000 kr.
Vanrækslugjald skoðunarstöðvar vegna lögbundinnar bifreiðaskoðunar þegar bifreið er ekki færð til skoðunar á réttum tíma.
Verð: 20.000 kr.
Umsýslugjald vegna hraðasekta, bílastæðagjalda, veggjalda og stöðumælasekta.
Verð: 1.100 kr.
Verð: 1.922 kr. á mánuði
Leigutaki fær SMS og/eða símtal þegar langtímaleigubíllinn er tilbúinn úr þjónustu og ber að sækja bílinn innan tveggja daga frá því að tilkynning berst. Frá þriðja degi greiðir leigutaki daggjald og tryggingu fyrir lánsbíl samkvæmt gildandi verðlista skammtímaleigu.
Höldur útvegar ekki lánsbíl vegna þjónustu sem tekur eina klukkustund eða skemur.
Gjöld geta verið mismunandi eftir tegund leigu og þeirri þjónustu sem óskað er eftir. Gjöld vegna sekta, bílastæða, veggjalda og annars kostnaðar sem verður til við notkun ökutækis geta einnig bæst við. Nánari upplýsingar um réttindi og skyldur leigutaka er að finna í leiguskilmálum.
Bílaleiga AkureyrarOpnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga á bílum | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti - Lagalegur fyrirvari.


