Bílaleiga erlendis

Laigja bílaleigubíl í útlöndum

Bókaðu bílaleigubíl erlendis með aðstoð okkar

Ertu á leið í frí, viðskiptaferð eða lengri dvöl erlendis og þarft bíl á áfangastað? Höldur – Bílaleiga Akureyrar aðstoðar þig við að finna bílaleigubíl sem hentar ferðinni, hvort sem þú þarft lítinn og hagkvæman fólksbíl, rúmgóðan fjölskyldubíl, skutbíl, jeppa eða stærri bíl fyrir fleiri farþega.

Bílaleiga Akureyrar er leyfishafi Europcar á Íslandi. Í gegnum samstarfið getum við aðstoðað íslenska viðskiptavini við að bóka bílaleigubíla á fjölmörgum áfangastöðum erlendis.

Þú sendir okkur einfaldlega upplýsingar um ferðina, hvar og hvenær þú vilt sækja bílinn og hvaða tegund bíls hentar þér. Við förum yfir möguleikana og kynnum þér verð og skilmála áður en bókun er gerð.

Einfaldari leið að bílaleigubíl erlendis

Það getur verið tímafrekt að bera saman bílaleigur, bílategundir, tryggingar og skilmála á erlendum vefsíðum. Skilmálar geta auk þess verið mismunandi eftir löndum og áfangastöðum.

Með því að senda okkur fyrirspurn getur þú fengið aðstoð við að finna bíl sem hentar þínum þörfum og ferðatilhögun.

Þetta getur verið sérstaklega þægilegt þegar ferðast er með fjölskyldu eða í stærri hóp, þegar þörf er á ákveðinni stærð bíls eða þegar afhending og skil bílsins eru á mismunandi stöðum.

Hvaða bílaleigubíl þarftu?

Rétti bíllinn fer meðal annars eftir fjölda farþega, farangri, akstursleið og lengd ferðarinnar.

Við getum aðstoðað við að finna meðal annars:

  • litla fólksbíla fyrir einstaklinga og pör
  • miðlungs og stærri fólksbíla
  • skutbíla með auknu farangursrými
  • jeppa
  • 7 manna bíla
  • 9 manna bíla

Ef þú ert ekki viss um hvaða stærð hentar best getur þú tekið það fram í fyrirspurninni ásamt upplýsingum um fjölda farþega og ferðina. Við getum þá aðstoðað við að finna hentugan valkost miðað við þær upplýsingar.

Bílaleigubíll á flugvellinum eða í borginni

Algengt er að sækja bílaleigubíl við komuna á áfangastað, til dæmis á flugvelli, en afhendingarstaðir eru einnig víða í borgum og öðrum ferðamannastöðum.

Í fyrirspurninni getur þú tilgreint land, borg eða flugvöll þar sem þú vilt taka við bílnum. Einnig er hægt að óska eftir því að skila bílnum á öðrum stað en hann var sóttur.

Möguleikar, verð og skilmálar ráðast af viðkomandi áfangastað og leigu.

Það sem þarf að hafa í huga þegar bíll er leigður erlendis

Reglur og skilmálar leigu geta verið mismunandi eftir löndum. Þess vegna er mikilvægt að skoða skilmála hverrar leigu áður en ferðin hefst.

Ökuskírteini

Leigutaki þarf að framvísa gildu ökuskírteini við afhendingu bíls. Kröfur geta verið mismunandi eftir landi og því er mikilvægt að ganga úr skugga um hvaða skilyrði gilda á viðkomandi áfangastað.

Kreditkort

Við afhendingu þarf leigutaki jafnframt að framvísa kreditkorti. Þetta á einnig við þótt leigan hafi verið greidd fyrirfram.

Tryggingar

Tryggingar sem fylgja bílaleigubíl geta verið mismunandi eftir löndum og bókunarskilmálum. Því er mikilvægt að skoða sérstaklega hvaða tryggingar eru innifaldar, hvaða sjálfsábyrgð gildir og hvort þörf sé á viðbótartryggingum.

Við getum veitt upplýsingar um þá tryggingakosti og skilmála sem eiga við viðkomandi tilboð.

Aldur ökumanns

Aldurskröfur geta verið mismunandi eftir landi, tegund leigu og bílflokki. Á sumum áfangastöðum geta einnig gilt sérstakir skilmálar fyrir unga ökumenn. Athugaðu því aldurskröfur þegar þú færð tilboð í bílaleigubíl.

Aukabúnaður

Ef þú þarft barnabílstól, aukabílstjóra eða annan aukabúnað er gott að taka það fram strax í fyrirspurninni. Framboð og verð á aukabúnaði fer eftir áfangastað og útfærslu leigu. Víða erlendis er óheimilt að skila aukabúnaði á annari leigustöð en þeirri sem bíllinn var sóttur. Þetta getur sérstaklega átt við ef skilað er í öðru landi.

Að sækja bílaleigubílinn

Við afhendingu bíls erlendis er mikilvægt að hafa nauðsynleg gögn tiltæk. Leigutaki þarf að minnsta kosti að gera ráð fyrir að framvísa bókunarstaðfestingu, ökuskírteini og kreditkorti.

Einnig mælum við með að þú kynnir þér bókunarskilmálana vel fyrir ferðina, þar á meðal reglur um eldsneyti eða hleðslu, tryggingar, sjálfsábyrgð, akstur yfir landamæri og skil á bílnum, eftir því sem við á.

Af hverju að senda fyrirspurn í gegnum Höld?

Þegar þú bókar bílaleigubíl erlendis er ekki alltaf nóg að bera eingöngu saman verð. Mikilvægt er að vita hvað er innifalið í verðinu og hvaða skilmálar fylgja leigunni.

Með því að senda okkur fyrirspurn færðu aðstoð við að finna hentugan bíl miðað við ferðina þína ásamt upplýsingum um verð og skilmála viðkomandi tilboðs.

Þú segir okkur hvert þú ert að fara, hvenær og hvaða bíl þú þarft. Við aðstoðum þig við að finna hentugan kost.

Sendu okkur fyrirspurn um bílaleigubíl erlendis

Fylltu út fyrirspurnarformið hér fyrir neðan með upplýsingum um ferðina.

Gott er að gefa upp:

  • afhendingar- og skiladag
  • áætlaðan afhendingar- og skilatíma
  • land og borg eða flugvöll
  • hvort bílnum verði skilað á öðrum stað
  • fjölda farþega
  • ósk um stærð eða tegund bíls
  • sérstakar óskir eða aukabúnað

Því nákvæmari sem upplýsingarnar eru, því auðveldara er að finna bíl sem hentar ferðinni.

Athugið að á mörgum áfangastöðum þarf að bóka með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara.

Sendu okkur fyrirspurn og við kynnum þér verð og skilmála fyrir bílaleigubíl á þínum áfangastað.

Upplýsingar um leigutaka
Bíll tekinn
Land, borg / flugvöllur
Bíl skilað
Land, borg / flugvöllur
Hvernig bíl ert þú að hugsa um?






Vinsamlega hakaðu við þá stærð sem gæti hentað þér.
Annað
Athugið að í mörgum löndum er lágmarks bókunarfyrirvari 48 klst.
Vinnsla persónuupplýsinga

Skrá þarf nafn, netfang og síma hið minnsta svo hægt sé að svara fyrirspurninni. Við reynum að svara eins fljótt og auðið er. Fyrirspurnir eru geymdar í hálft ár eða lengur. Til að láta breyta eða eyða fyrirspurn má senda beiðni á personuvernd@holdur.is