Upplýsingar um tryggingar okkar og viðbótarverndir

Bílaleiga

Kaskótrygging (CDW)

Innifalið í leiguverði er lögboðin ökutækjatrygging gagnvart þriðja aðila ásamt kaskótryggingu. Eigin áhætta kaskótryggingar er kr. 265.000 fyrir fólksbíla og/eða kr. 475.000 fyrir jeppa og stærri bíla. Kaskótrygging (CDW) er hluti af grunn tryggingapakkanum okkar.

 

Súper kaskótrygging (SCDW)

Valkvæð trygging sem lækkar eigin áhættu leigutaka á grunn kaskótryggingunni (CDW) sem innifalin er í leiguverðinu. Sé þessi trygging valin þá lækkar eigin áhætta fólksbíla úr kr. 265.000 í kr. 65.000 og eigin áhætta jeppa og stærri bíla úr kr. 475.000 í kr. 120.000. Súper kaskótrygging (SCDW) er hluti af miðlungs tryggingapakkanum okkar.

 

Slysatrygging ökumanns og farþega (PAI)

Slysatrygging ökumanns og farþega er hluti af lögboðinni skyldutryggingu ökutækis og er því innifalin í leiguverði. Hún bætir það slys sem ökumaður og/eða farþegar verða fyrir. Slysatrygging (PAI) er hluti af grunn tryggingapakkanum okkar.

 

Þjófnaðartrygging (TP)

Innifalin í leiguverði og tryggir þig gegn þjófnaði á ökutækinu. Tryggingin tekur þó ekki til þjófnaðar á persónulegum munum. Þjófnaðartrygging (TP) er hluti af grunn tryggingapakkanum okkar.

Framrúðugjald (GP)

Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði sem hljótast kann af völdum brotinnar framrúðu, brotinna aðalljósa og steinkasts. Sé gjaldið valið þá lækkar eigin kostnaður leigutaka sem gjaldið nær til niður í krónur núll. Framrúðgjald (GP) er hluti af miðlungs tryggingapakkanum okkar.

Sand- og öskufoksgjald (SADW)

Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði af völdum sand- eða öskufoks. Ekkert annað gjald, trygging né vernd bætir slíkan kostnað. Gjaldinu er hægt að bæta við einu og sér og er það ekki í tengslum við neitt annað gjald, vernd eða tryggingu. Sand og öskufoksgjald (SADW) er hluti af úrvals tryggingapakkanum okkar.

 

Hjólbarðavernd (TWP)

Verndin tekur til skemmda sem kunna að verða á dekkjum og/eða felgum með engri eigin áhættu. Leigutaki ber þó sjálfur ábyrgð á því að skipta um sprungið dekk eða nota viðgerðarsett. Ef það er ekki mögulegt, þarf hann að koma ökutækinu á eigin kostnað á næsta verkstæði til viðgerðar eða dekkjaskipta. Þessi vernd er hluti af og er innifalin í úrvals tryggingapakkanum okkar.

 

Engin eigin áhætta (ZERO)

Til að njóta engrar eigináhættu þarf að velja úrvals tryggingapakkann okkar. Þar eru innifaldar allar þær tryggingar, verndir og gjöld sem hér er taldið upp, að undanskilinni Vegaaðstoð.

Vegaaðstoð (RSA)

Vegaaðstoð lækkar kostnað þegar kalla þarf til dráttarbíl og tekur til þjónustu vegna vegaaðstoðar. Sjálfsábyrgð er kr. 35.000 fyrir fólksbíla og/eða kr. 55.000 fyrir jeppa og stærri bíla. Aktu áhyggjulaus vitandi að aðstoð er ávallt til taks.

Vegaaðstoð kostar kr. 1.500 á dag fyrir fólksbíla og kr. 2.000 á dag fyrir jepplinga og stærri bíla.

 

 

Tryggingapakkar:

Tryggingapakkar

Verð á tryggingapökkum

Grunnvernd

Fólksbílar - innifalin.
Jeppar og stærri bílar - innifalin.

Miðlungsvernd

kr. 2.400 á dag fyrir fólksbíla.
kr. 4.450 á dag fyrir jeppa og stærri bíla.

Úrvalsvernd

kr. 3.900 á dag fyrir fólksbíla.
kr. 6.500 á dag fyrir jeppa og stærri bíla.




Höldur er dreifingaraðili trygginga fyrir VÍS
Skilmálar trygginga:
BK10 (ökutækjatrygging kaskó)
BA10 (ökutækjatrygging lögboðin)

það leigja bíl án trygginga
Kjósir þú að leigja bíl án trygginga er hægt að senda okkur fyrirspurn á netfangið holdur@holdur.is eða hafa samand við þjónustuver í síma 461 6000