Höldur-Bílaleiga Akureyrar er fyrsti kostur rammasamnings ríkisins.

Höldur-Bílaleiga Akureyrar hlaut hæstu einkunn bjóðenda og verður því fyrsti kostur í nýjum rammasam…
Höldur-Bílaleiga Akureyrar hlaut hæstu einkunn bjóðenda og verður því fyrsti kostur í nýjum rammasamningi um bílaleigubíla.

Nýverið bauð Fjársýsla ríkisins út rammasamning um bílaleigubíla og hlaut Höldur-Bílaleiga Akureyrar hæstu einkunn bjóðenda og verður því fyrsti kostur ýmissa stofnanna, fyrirtækja og sveitarfélaga sem koma að þessum stóra samningi.

Útboðið er viðamikið og nær samningurinn yfir alla langtíma- og skammtímaleigu innanlands á fólksbílum, jeppum og 7-9 manna smárútum. Markmið samningsins er að gera einfaldan, skýran og notendavænan samning og tryggja hagkvæm verð og góða þjónustu.

Gefin voru stig fyrir verð, þjónustu við landsbyggðina, úrval og fjölda af rafbílum ásamt umhverfisvottun. Höldur-Bílaleiga Akureyrar uppfyllir þessa þætti einstaklega vel. Góð þjónusta er okkur afar mikilvæg, enda kjörorð okkar Þínar þarfir-okkar þjónusta.

Starfsstöðvarnar eru 21 talsins um allt land, rafbílaflotinn er sá stærsti á markaðnum en hann telur um 750 rafbíla (auk 1.200 tengiltvinnbíla) og þá hefur fyrirtækið verið með umhverfisvottunina ISO14001 síðan árið 2010.

Ofangreindir þættir, auk sterkrar liðsheildar starfsfólks Hölds og það traust sem fyrirtækið hefur út á við, skilaði afgerandi niðurstöðum í útboðinu en stigagjöfin var sem hér segir:

Hluti A - Rafbílar:

  • Höldur 93,5 stig
  • Hertz 66,25 stig
  • Alp 56,35 stig

Hluti B – Aðrir orkugjafar:

  • Höldur 87,84 stig
  • Hertz 72,15 stig
  • Alp 64,20 stig

Samningurinn hefur nú þegar tekið gildi og við hlökkum til að veita aðilum rammasamnings ríkisins framúrskarandi þjónustu um allt land.

Fjársýslan rammasamningur bílaleigubílar Höldur

 

Bóka bíl á rammasamnings kjörum