Bílaleiga Akureyrar býður úrval ferðabíla og húsbíla til leigu yfir sumartímann. Ef þú hefur áhuga á að leigja einhvern af bílunum hér fyrir neðan, þá endilega sendu okkur fyrirspurn. Við kappkostum að svara fyrirspurnum fljótt og alla virka daga. Við látum þig vita hvort við eigum valinn bíl lausan á þeim dagsetningum sem þú tilgreinir og sendum þér verðtilboð í leiguna.
Ferðabíll með svefnpláss fyrir tvo til fjóra. Upplagt fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Þessi bíll er fjórhjóladrifinn og má fara um fjallvegi. Spennandi og öðruvísi ferðamáti sem tekur þig á vit ævintýranna, hvert á land sem er. Búinn ísskáp, vask, eldavél og olíumiðstöð. Lofttjakkar lyfta þaki þegar tjaldað er.
Lúxus ferðabíll með svefnpláss fyrir allt að fjóra. Sjálfskiptur með aldrifi. Búinn ýmsum þægindum svo sem kæliboxi, eldavél og næturhitun. Bekk aftast er auðveldlega breytt í rúm fyrir tvo. Þaki er lyft upp þegar tjaldað er og þannig útbúið rúm fyrir tvo í viðbót. Tilvalinn bíll í útileguna fyrir tvo fullorðna og tvö börn.
Nettur að utan en stór að innan. Þessi hugvitsamlega útfærði húsbíll er með svefnpláss fyrir tvo. Bíllinn er búinn öllum helstu þægindum svo sem ísskáp, vask, eldavél, vatnshitara, hitakerfi, sturtu og klósetti. Hann hefur minni yfirbyggingu en stærri húsbílarnir og tekur þar að leiðandi á sig minni vind.
Vel útbúinn og rúmgóður húsbíll með svefnaðastöðu fyrir fjóra. Gott geymslupláss. Bíllinn er búinn öllum helstu þægindum svo sem ísskáp, vask, eldavél, vatnshitara, hitakerfi, sturtu og klósetti. Útileguborð og stólar fylgja þessum bíl.
Sannkallað lúxushótel á hjólum með svefnaðastöðu fyrir fimm manns. Gott geymslupláss. Bíllinn er búinn öllum helstu þægindum svo sem ísskáp, vask, eldavél, vatnshitara, hitakerfi, sturtu og klósetti. Útileguborð og stólar fylgja þessum bíl.