
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru víða á Íslandi og á helstu ferðaleiðum er að finna hraðhleðslustöðvar þar sem hægt er að bæta verulega við drægni bílsins á tiltölulega stuttum tíma. Á lengri eða afskekktari leiðum er mikilvægt að skoða staðsetningu og aðgengi hleðslustöðva áður en lagt er af stað. Rafbílarnir okkar eru ekki ætlaðir til aksturs á F-vegum eða á hálendisvegum, þar sem hleðsluinnviðir eru takmarkaðir eða ekki til staðar og vegaaðstæður geta aukið hættu á skemmdum á undirvagni og rafhlöðu. Athugið að undirvagnsskemmdir eru ekki tryggðar samkvæmt leiguskilmálum.
Drægni rafbíla fer meðal annars eftir stærð rafhlöðunnar og orkunotkun bílsins. Framleiðendur gefa upp áætlaða drægni í kílómetrum samkvæmt WLTP-staðlinum. WLTP-drægni er staðlað viðmið sem auðveldar samanburð á bílum, en raunveruleg drægni getur verið töluvert frábrugðin henni, ekki síst við íslenskar aðstæður.
Fjölmargir þættir geta haft áhrif á drægni, þar á meðal:
Flestir rafbílar sýna upplýsingar um orkunotkun og áætlaða drægni miðað við hleðslustöðu rafhlöðunnar og nýlega orkunotkun. Drægnin er áætlun en ekki trygging fyrir því hversu langt bíllinn kemst. Mikilvægt er að fylgjast bæði með hleðsluhlutfalli og áætlaðri drægni, því áætlunin getur breyst þegar aksturs- og veðuraðstæður breytast.
Við afhendum alla 100% rafbíla með að lágmarki 75% hleðslu en gerum alltaf okkar besta til að hafa þá fullhlaðna við afhendingu.
Rafbílar nota almennt meiri orku á hvern ekinn kílómetra við þjóðvegaakstur en við akstur á minni hraða í þéttbýli. Það skýrist meðal annars af því að loftmótstaða eykst mikið með auknum hraða. Í innanbæjarakstri getur rafbíllinn jafnframt endurheimt hluta hreyfiorkunnar og skilað henni aftur inn á rafhlöðuna þegar hægt er á bílnum.
Á sumum leiðum utan þéttbýlis er jafnframt lengra á milli hleðslustöðva. Því er sérstaklega mikilvægt að fylgjast með hleðslustöðu, áætlaðri drægni og staðsetningu hleðslustöðva þegar eknar eru lengri leiðir.
Hleðsla rafbíls er einföld þegar þú hefur prófað hana einu sinni.
Á lengri ferðum er DC-hraðhleðslustöð yfirleitt fljótlegasti kosturinn fyrir hreina rafbíla. Fyrir lengri viðdvöl eða hleðslu yfir nótt hentar AC-hleðsla vel.
Fylgdu leiðbeiningum á hleðslustöðinni og tengdu hleðslukapalinn við bílinn.
Greiðslu- og auðkenningaraðferðir geta verið mismunandi eftir rekstraraðilum. Fylgdu leiðbeiningunum á stöðinni eða í appi viðkomandi rekstraraðila.
Athugaðu á skjá bílsins, hleðslustöðvarinnar eða í appinu að hleðsla sé hafin áður en þú gengur frá bílnum.
Þegar nægileg hleðsla er komin á bílinn stöðvar þú hleðsluna samkvæmt leiðbeiningum stöðvarinnar, aftengir bílinn og heldur áfram ferðinni.

AC-hleðsla hentar vel þegar bíllinn stendur í lengri tíma, til dæmis yfir nótt við gististað.
DC-hraðhleðsla hentar vel á lengri akstursleiðum þegar bæta þarf mikilli orku á rafhlöðuna á tiltölulega stuttum tíma.
Hámarksafl hleðslustöðvar segir ekki eitt og sér hversu hratt bíllinn hleður. Raunverulegt hleðsluafl takmarkast meðal annars af hleðslugetu bílsins, afli stöðvarinnar, hleðslustöðu og hitastigi rafhlöðunnar. Hleðsluhraði getur því verið mismunandi þótt sami bíll sé tengdur við sömu stöð við mismunandi aðstæður.
Við DC-hraðhleðslu minnkar hleðsluhraðinn yfirleitt eftir því sem hleðslustaða rafhlöðunnar hækkar. Á lengri ferðum getur því oft verið fljótlegra að hlaða í kringum 80%, eða nægilega mikið fyrir næsta hluta ferðarinnar, og halda síðan áfram í stað þess að bíða eftir 100%. Þetta er viðmið en ekki regla og hleðsluhegðun er mismunandi eftir bílum og aðstæðum.
Get ég ferðast um Ísland á rafbíl?
Já! Það eru almennt góðir hleðsluinnviðir fyrir rafbíla á Íslandi. Hleðslustöðvar má finna meðfram hringveginum og helstu ferðaleiðum, í flestum stærri bæjum og við fjölmarga þjónustustaði. Með smá skipulagningu er auðvelt að ferðast um stærsta hluta Ísland á rafbíl.
Á lengri eða afskekktari leiðum er mikilvægt að skoða staðsetningu og aðgengi hleðslustöðva áður en lagt er af stað. Rafbílarnir okkar eru ekki ætlaðir til aksturs á F-vegum eða á hálendisvegum, þar sem hleðsluinnviðir eru takmarkaðir eða ekki til staðar og vegaaðstæður geta aukið hættu á skemmdum á undirvagni og rafhlöðu. Athugið að undirvagnsskemmdir eru ekki tryggðar samkvæmt leiguskilmálum.
Hvar finn ég hleðslustöðvar?
Þú getur meðal annars notað leiðsögukerfi bílsins, þar sem það býður upp á leit að hleðslustöðvum, og kort eða öpp hleðsluþjónustuaðila.
Á lengri leiðum er gott að skoða hleðslumöguleika fyrirfram og hafa annan hleðslustað í huga ef fyrsta stöðin er upptekin eða ekki tiltæk.
Hvernig greiði ég fyrir hleðslu?
Greiðsluleiðir eru mismunandi eftir rekstraraðilum hleðslustöðva. Fylgdu leiðbeiningum á stöðinni eða í appi viðkomandi þjónustuaðila. Fjölmargir þjónustuaðilar eru á íslandi, þar á meðal ON, N1, E1, Tesla, Ísorka ofl.
Hleðslulykill fylgir ekki bílum Bílaleigu Akureyrar.
Hversu langt kemst ég á einni hleðslu?
Drægni fer eftir bílgerð, hleðslustöðu og aðstæðum. Hraði, kuldi, vindur, færð, hækkun, farþegar og farangur ásamt notkun miðstöðvar eða loftkælingar geta haft áhrif á orkunotkun og drægni.
Uppgefin WLTP-drægni er stöðluð viðmiðun en raunveruleg drægni getur verið frábrugðin henni.
Get ég treyst drægninni sem bíllinn sýnir?
Drægnin sem bíllinn sýnir er áætlun en ekki tryggð vegalengd. Fylgstu einnig með hleðsluhlutfalli (%) og taktu mið af veðri, leið og aksturshraða.
Áætluð drægni getur breyst þegar aksturs- eða veðuraðstæður breytast.
Með hversu mikilli hleðslu fæ ég rafbílinn afhentan?
Við afhendum 100% rafbíla með að lágmarki 75% hleðslu og gerum okkar besta til að hafa þá fullhlaðna við afhendingu.
Hversu mikið hlaðinn þarf rafbíllinn að vera við skil?
Rafbíl skal skila með að minnsta kosti 75% hleðslu. Ef hleðslan er undir 75% við skil er innheimt hleðslugjald samkvæmt gildandi verðskrá.
Gott er að skipuleggja síðustu hleðslu með hliðsjón af því hversu langt þarf að aka frá hleðslustöð að skilastað.
Hvað gerist ef ég týni hleðslukapli?
Öllum hleðsluköplum og öðrum hleðslubúnaði sem fylgdi bílnum við afhendingu skal skila með bílnum.
Hleðslukaplar eru verðmætur búnaður. Ef hleðslukapli er ekki skilað við lok leigu ber leigutaki kostnað af kaupum á nýjum kapli.
Eru einhverjir staðir sem ég get ekki ferðast um á rafbíl?
Rafbílarnir okkar eru ekki ætlaðir til aksturs á F-vegum eða á hálendisvegum, þar sem hleðsluinnviðir eru takmarkaðir eða ekki til staðar og vegaaðstæður geta aukið hættu á skemmdum á undirvagni og rafhlöðu. Athugið að undirvagnsskemmdir eru ekki tryggðar samkvæmt leiguskilmálum.
Hver er munurinn á AC-hleðslu og DC-hraðhleðslu?
AC-hleðsla hentar vel þegar bíllinn getur verið lengur í hleðslu, til dæmis yfir nótt.
DC-hraðhleðsla getur hlaðið rafhlöðuna mun hraðar og hentar sérstaklega vel á lengri ferðum þegar bæta þarf mikilli orku á rafhlöðuna á tiltölulega stuttum tíma.
Af hverju er oft talað um hlaða ekki meira en 80% við hraðhleðslu?
Á mörgum rafbílum minnkar DC-hleðsluhraðinn eftir því sem hleðslustaða rafhlöðunnar hækkar. Á lengri ferðum getur því oft verið fljótlegra að hlaða í kringum 80%, eða nægilega mikið fyrir næsta hluta ferðarinnar, og halda síðan áfram.
80% er viðmið en ekki regla. Hleðsluhegðun er mismunandi eftir bílum og aðstæðum.
Af hverju hleður bíllinn ekki jafn hratt og stendur á hleðslustöðinni?
Uppgefið afl hleðslustöðvarinnar er hámarksafl hennar en segir ekki eitt og sér hversu hratt bíllinn hleður.
Raunverulegt hleðsluafl ræðst meðal annars af hleðslugetu bílsins, afli stöðvarinnar, hleðslustöðu og hitastigi rafhlöðunnar.
Hefur kuldi áhrif á rafbílinn?
Já, í kulda getur orkunotkun aukist og drægni minnkað. Köld rafhlaða getur einnig tekið við minna afli við DC-hraðhleðslu þar til hún hefur náð heppilegra hitastigi.
Þetta er eðlileg virkni og þýðir ekki endilega að eitthvað sé að bílnum eða hleðslustöðinni. Í miklum kulda er því mikilvægt að gera ráð fyrir minni drægni og skipuleggja hleðslu með góðum fyrirvara.
Hvað get ég gert ef drægnin verður óvænt minni en ég gerði ráð fyrir?
Finndu næstu hentugu hleðslustöð og dragðu úr hraða þar sem það er öruggt. Stilltu á Eco stillingu í bílnum, haltu jöfnum hraða, forðastu óþarfa hröðun og dragðu úr mikilli upphitun eða loftkælingu ef þörf er á að spara orku.
Ekki bíða þar til rafhlaðan er nánast tóm áður en leitað er að hleðslustöð.
Hvað geri ég ef hleðslustöðin virkar ekki?
Athugaðu hvort tengið sé rétt tengt og hvort bíllinn eða hleðslustöðin sýni villuboð. Prófaðu að stöðva hleðsluferlið og hefja það aftur samkvæmt leiðbeiningum stöðvarinnar.
Ef stöðin virkar ekki skaltu hafa samband við þjónustuaðila hennar eða finna aðra hleðslustöð. Ef þú telur að vandamálið sé í bílnum skaltu hafa samband við okkur hjá Bílaleigu Akureyrar.
Hvað gerist ef rafhlaðan tæmist alveg?
Ef rafhlaðan tæmist þannig að ekki er lengur hægt að aka bílnum getur þurft að flytja hann að hleðslustöð eða öðrum hentugum stað.
Hafðu strax samband við Bílaleigu Akureyrar og fylgdu leiðbeiningum starfsfólks.
Kostnaður vegna aðstoðar eða flutnings bíls fer samkvæmt gildandi verðskrá.
Get ég hlaðið rafbíl úr venjulegri innstungu?
Við mælum með að rafbílar séu hlaðnir á viðurkenndum hleðslustöðvum.
Ef bílnum fylgir færanlegt hleðslutæki frá framleiðanda getur verið hægt að hlaða úr venjulegri innstungu þegar aðstæður leyfa. Slík hleðsla er hæg og mikilvægt er að innstunga og raflögn henti fyrir álagið. Rafbílar | Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun
Ekki nota framlengingarsnúrur, millistykki eða annan búnað sem ekki er ætlaður til hleðslu rafbíla. Ef þú ert ekki viss um að aðstæður séu öruggar skaltu nota viðurkennda hleðslustöð.
Hver er munurinn á rafbíl, tengiltvinnbíl og tvinnbíl?
Rafbíll (EV/BEV) er eingöngu knúinn rafmagni úr rafhlöðu og þarf að hlaða með því að tengja hann við hleðslu.
Tengiltvinnbíll (PHEV) er með bæði rafmótor og brunahreyfil. Hægt er að hlaða rafhlöðuna með því að tengja bílinn við hleðslustöð og aka á rafmagni eftir því sem hleðsla og aðstæður leyfa.
Tvinnbíll (HEV) er einnig með rafmótor og brunahreyfil en er ekki tengdur við hleðslustöð. Kerfi bílsins sér sjálft um að nýta og endurheimta raforku við akstur.
Upplýsingar um rafdrægni og hleðslugetu eru mismunandi eftir bílgerðum og má finna með upplýsingum um viðkomandi bíl.
Get ég hraðhlaðið tengiltvinnbíl (PHEV)?
Það fer eftir bílgerð. Margir tengiltvinnbílar styðja aðeins AC-hleðslu en sumir geta einnig stutt DC-hraðhleðslu.
Athugaðu upplýsingar um viðkomandi bíl áður en DC-hraðhleðslustöð er valin.
Bílaleiga AkureyrarOpnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga á bílum | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti - Lagalegur fyrirvari.


