Innifalið í leiguverði er lögboðin ökutækjatrygging gagnvart þriðja aðila ásamt kaskótryggingu. Sjálfsábyrgð er kr. 195.000 fyrir fólksbíla og/eða kr. 375.000 fyrir jeppa og stærri bíla. CDW kaskótrygging er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.
Slysatrygging ökumanns og farþega er hluti af lögboðinni skyldutryggingu ökutækis og er því innifalin í leiguverði. Hún bætir það slys sem ökumaður og/eða farþegar verða fyrir. PAI slysatrygging er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.
Innifalin í leiguverði og tryggir þig gegn þjófnaði á ökutækinu. Tryggingin tekur þó ekki til þjófnaðar á persónulegum munum. TP þjófnaðartrygging er hluti af grunn - tryggingapakkanum okkar.
Valkvæð trygging sem lækkar sjálfsábyrgð leigutaka á CDW kaskótryggingunni sem innifalin er í leiguverðinu. Sé þessi trygging valin þá lækkar sjálfsábyrgð fólksbíla úr kr. 195.000 í kr. 49.500 og sjálfsábyrgð jeppa og stærri bíla úr kr. 375.000 í kr. 90.000. SCDW súper kaskótrygging er hluti af miðlungs - tryggingapakkanum okkar.
Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði sem hljótast kann af völdum brotinnar framrúðu, brotinna aðalljósa og steinkasts. Sé gjaldið valið þá lækkar eigin kostnaður leigutaka sem gjaldið nær til niður í krónur núll. GP framrúðgjald er hluti af miðlungs - pakkanum okkar.
Valkvætt gjald sem ver leigutaka gegn kostnaði af völdum sand- eða öskufoks. Ekkert annað gjald, trygging né vernd bætir slíkan kostnað. Gjaldinu er hægt að bæta við einu og sér og er það ekki í tengslum við neitt annað gjald, vernd eða tryggingu. SADW Sand og öskufoksgjald er hluti af úrvals - pakkanum okkar.
Til að njóta engrar eigináhættu þarf að velja úrvals - tryggingapakka okkar. Þar eru innifaldar allar þær tryggingar og verndir sem taldar eru upp hér að ofan.
Höldur er dreifingaraðili trygginga fyrir VÍS