Sendibílar Hölds eru afhentir frá afgreiðslustöð okkar við Njarðargötu í Reykjavík, skammt frá Reykjavíkurflugvelli. Þar bjóðum við fjölbreytt úrval sendibíla í mismunandi stærðum ásamt aukabúnaði sem auðveldar flutninga, svo sem flutningskössum, trillum og flutningsbrettum. Flokkar V20 og V30 eru einnig í boði á afgreiðslustöð okkar við Tryggvabraut á Akureyri.
Ef þú hefur áhuga á að leigja sendibíl, þá endilega hafðu samband við okkur í síma 461 6100, með tölvupósti á netfangið sendibilaleiga@holdur.is eða með því að fylla út formið hér fyrir neðan og senda okkur.
Við kappkostum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er og látum þig vita hvort bíllinn sé tiltækur þann dag sem þú óskar.