Höldur-Bílaleiga Akureyrar hefur tekið í notkun nýjan og glæsilegan bílaflutningabíl af gerðinni Mercedes Benz Actros. Um er að ræða 8 hjóla grindarbíl með loftfjöðrun á fram- og afturás. Bíllinn er með Rolfo ábyggingu fyrir flutning á allt að 5 bílum.
Bíllinn verður aðallega notaður í að ferja bílaleigubíla á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.
Á meðfylgjandi mynd má sjá starfsmenn Bílaleigu Akureyrar, þá Kristófer Vilhjálmsson, Björn Grétar Jónsson og Birki Orra Jóhannsson taka á móti þessum glæsilega bíl frá Landfara, umboðsaðila Mercedes Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.

Bílaleiga AkureyrarOpnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti og afritun með öllu óheimil


