Starfsfólk Hölds-Bílaleigu Akureyrar styður börn með krabbamein

Myndin var tekin þegar fulltrúar Hölds-Bílaleigu Akureyrar afhentu Grétu Ingþórsdóttur framkvæmdastj…
Myndin var tekin þegar fulltrúar Hölds-Bílaleigu Akureyrar afhentu Grétu Ingþórsdóttur framkvæmdastjóra Styrktarfélags barna með krabbamein framlagið.

Starfsfólk Hölds-Bílaleigu Akureyrar tók þátt í Treyjudeginum sem haldinn var í fyrsta sinn þann 4.september til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Starfsfólk mætti í sínum uppáhaldstreyjum og til að sýna stuðning sinn í verki. Einnig safnaði starfsfólk 250.000 kr. til styrktar félaginu.

Höldur ákvað að tvöfalda framlag starfsfólksins og því varð heildarupphæðin samtals 500.000 kr sem Höldur og starfsmenn afhentu styrktarfélaginu Börn með krabbamein.