Merkum áfanga var náð á dögunum þegar starfsfólk Hölds gróðursetti tré númer 40.000 í árlegri gróðursetningarferð félagsins. Gróðursetning hefur verið fastur liður í starfsemi Hölds í þrjá áratugi og hefur starfsfólk víða um land tekið þátt í verkefninu.
Á sama tíma náðist jafnframt markmið fyrirtækisins um að gróðursetja 2.000 tré á árinu 2026. Að þessu sinni fór gróðursetning fram í Heiðmörk og í Hlíðarfjalli við Akureyri, þar sem starfsfólk lagði sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar skóglendis og grænna svæða.
Í þrjá áratugi eða allt frá 1996 hefur starfsfólk Hölds komið að gróðursetningu á fjölmörgum svæðum landsins, meðal annars á Hólasandi, í Eyjafirði, Heiðmörk og víðar, auk þátttöku í uppgræðsluverkefni á Reykjanesi. Gróðursetning og aðrar landbætur hafa verið í samstarfi við skógræktarfélög, landeigendur og aðra samstarfsaðila í þeim tilgangi að bæta landgæði og stuðla að uppbyggingu vistkerfa.
Gróðursetning trjáa er þó aðeins einn þáttur í umfangsmiklu umhverfis- og loftslagsstarfi Hölds. Félagið hefur starfað eftir vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi í 16 ár og unnið markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar með mælanlegum og skipulögðum hætti.
Sú vinna hefur skilað árangri á fjölmörgum sviðum, meðal annars með samdrætti í heildarorkunotkun, aukinni flokkun og endurnýtingu en um 90% endurnýtingar- og endurvinnsluhlutfall hefur verið af öllum úrgangi sem fellur til í starfseminni síðustu tvö ár.
Höldur hefur jafnframt verið virkur þátttakandi í orkuskiptum í samgöngum. Í dag telur bílafloti félagsins yfir 1.000 rafbíla auk fjölda tengiltvinnbíla og hefur fyrirtækið lagt ríka áherslu á að auðvelda viðskiptavinum að velja samgöngukosti sem geta stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum.
Samhliða þessu hefur fyrirtækið um langa hríð lagt áherslu á forvarnir í öryggismálum og upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna um ábyrga umgengni um íslenska náttúru, meðal annars mikilvægi þess að virða bann við utanvegaakstri og ganga vel um viðkvæm náttúrusvæði.
„Við hjá Höldi lítum á samfélagslega ábyrgð og umhverfismál sem eðlilegan hluta af daglegum rekstri. Íslensk náttúra er ein helsta ástæða þess að ferðamenn sækja landið heim og því teljum við mikilvægt að leggja okkar af mörkum til að vernda hana. Trjágróðursetningin er sýnilegt dæmi um það, en hún er jafnframt hluti af víðtækari vegferð sem felur í sér markvissa vinnu að umhverfis- og loftslagsmálum, allt frá gróðursetningu og landbótum til orkuskipta og ábyrgrar nýtingar auðlinda," segir Jón Gestur Ólafsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri Hölds.
Hann segir 40.000 gróðursett tré vera skýrt dæmi um hverju hægt sé að ná fram með markvissri og samstilltri vinnu til lengri tíma.
„Þessi áfangi er fyrst og fremst árangur starfsfólksins okkar sem hefur lagt sitt af mörkum í gegnum árin. Um leið er hann áminning um að litlar aðgerðir sem framkvæmdar eru af festu ár eftir ár geta skilað umtalsverðum árangri fyrir samfélagið og umhverfið.“
Með því að ná áfanganum um 40.000 gróðursett tré bætist nýr kafli við sögu verkefnis sem hefur sameinað starfsfólk Hölds í þrjátíu ár með það að markmiði að skilja landið eftir í betra ástandi fyrir komandi kynslóðir.
Bílaleiga AkureyrarOpnunartímar | Hafa samband | Mínar síður | Langtímaleiga á bílum | English
Höldur er leyfishafi Europcar International á Íslandi.
© Efni þessa vefs er varið höfundarrétti - Lagalegur fyrirvari.


