Upplýsingar um rafbíla

rafbilar upplýsingar

Við bjóðum marga spennandi valkosti í flokki rafbíla auk tvinn og tengiltvinnbíla, bæði í skammtíma- og langtímaleigu

Orkuskipti í samgöngum á landi er einn mikilvægasti þáttur samdráttar í losun gróðuhúsalofttegunda á Íslandi og Höldur ehf – Bílaleiga Akureyrar hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á virka þátttöku í þessu mikilvæga verkefni. Við höfum sett árleg markmið um hlutfallslega aukningu visthæfra ökutækja í flotanum og horfum nú til hreinorkubíla og þá aðalega rafbíla í því sambandi. Útskipti á flota fyrirtækisins eru mun hraðari en á almennum markaði og því ljóst að aukið hlutfall rafbíla í flota okkar mun hraða útskiptum á bílaflota landsmanna með auknu úrvali rafbíla á endursölumarkaði.

Fyrsti rafbíll fyrirtækisins var keyptur árið 2009 en rafbílaflotinn telur nú yfir 700 ökutæki og hlutfall rafbíla af heildarflota eykst stöðugt. Sem einn stærsti einstaki bifreiðakaupandi landsins viljum við með auknu hlutfalli rafbíla, leggja okkar af mörkum til að hraða orkuskiptum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Upplýsingar um notkun og hleðslu rafbíla

Rafbílar – 100% rafmagn

Rafbílar ganga eingöngu fyrir rafmagni og þróun þeirra tekur talsverðum breytingum ár frá ári. Þrátt fyrir að drægni þeirra sé alltaf að aukast kallar þessi kostur á meira skipulag og forsjárhyggju við notkun, sérstaklega í lengri ferðum. Rafbílar okkar eru með raundrægni á bilinu 100-400 kílómetra á einni hleðslu, allt eftir bílum og aðstæðum hverju sinni. Það er ekki svo ósvipað að keyra rafbíl og hefðbundin sjálfskiptan bíl. Það fyrsta sem þú tekur mögulega eftir er að vélarhljóð er ekkert auk þess sem rafmótorinn er algerlega stiglaus.

Dæmi um rafbíla í boði hjá Bílaleigu Akureyrar:

 

Orkunotkun og drægni:

Drægni rafbíla fer eftir stærð rafhlöðu og orkunotkun og framleiðendur í dag gefa upp áætlaða drægni í kílómetrum samkvæmt WLTP staðlinum. Hins vegar þarf að hafa í huga að uppgefin drægni frá framleiðendum er aðeins til viðmiðunar og ekki er hægt að treysta henni, allavega ekki við íslenskar aðstæður. Það eru fjölmargir þættir sem geta haft áhrif á drægni, þar á meðal:

  • Aksturslag ökumanns; hraði, hvernig tekið er af stað, hvort haldið er jöfnum hraða o.s.frv.
  • Veðurfar; hitastig, vindur og úrkoma
  • Vegur og undirlag
  • Klifur (akstur upp brekkur)
  • Hleðsla og/eða farmur bíls
  • Hvort rafhlöður séu heitar eða kaldar við ræsingu
  • Notkun á miðstöð, sætishita, útvarpi ofl.

Flestir nýir rafbílar sýna orkunotkun út frá meðaltali yfir ákveðin tíma og rauntímanotkun á hverju augnabliki og sýna hversu marga kílómetra hægt er að keyra á þeirri hleðslu sem eftir er á rafhlöðunni hverju sinni. Hins vegar þarf að fylgjast vel með stöðu hleðslu því hún getur breyst umtalsvert á stuttum tíma ef aðstæður sem hafa áhrif á drægnina breytast. Við afhendum alla 100% rafbíla með að lágmarki 75% hleðslu en gerum alltaf okkar besta til að hafa þá full hlaðna.

Meiri orkunotkun úti á þjóðvegum en innanbæjar

Drægni rafbíla er minni úti á þjóðvegum og þar er lengra á milli hleðslustöðva. Það er því sérstaklega mikilvægt að fylgjast með drægni og staðsetningu á hleðslustöðvum þegar eknar eru lengri vegalegndir utan þéttbýlis.

Gjaldtaka hins opinbera

Í byrjun árs 2024 var tekið upp kílómetragjald fyrir akstur rafmagns og tengiltvinn bíla. Gjaldið byggir á fjölda ekinna kílómetra og er 6 kr/km fyrir rafmagns- og vetnisbíla en 2 kr/km fyrir tengiltvinnbíla. Kílómetragjald af slíkum bílum er því innheimt við skil að leigu lokinni.

Stillingar og sparakstursráð

Í flestum rafbílum er hægt að stilla á mismunandi aksturskerfi (driving mode) og þó svo að þær geti verið mismunandi eftir bílum er yfirleitt hægt að velja milli t.d. Sport, Normal og Eco/Eco+ (vistvæn). Munað getur tugum kílómetra í drægni eftir því hvaða stilling er notuð og Eco er sú sem gefur mesta drægni. Ef tvísýnt er hvort áfangastað eða næstu hleðslustöð verði náð er mikilvægt að minnka orkunotkun eins og kostur er. Slökktu á útvarpi og miðstöð ef hægt er og haltu jöfnum hraða milli 80 og 85 km á klst.

Ef hleðslan klárast

Ef hleðsla á rafbíl klárast er ekki hægt að keyra hann og þá þarf að sækja bílinn á sérstökum bílaflutningabíl og koma honum í hleðslu. Leigutaka ber að tilkynna Bílaleigu Akureyrar ef rafbíll verður rafmagnslaus og ber leigutaki allan kostnað sem hlýst af flutningi á verkstæði eða hleðslustöð.

Hvernig fer hleðsla fram?

Við mælum með hleðslu annað hvort með svokallaðir heimahleðslustöð 22kW eða hraðhleðslustöð 50-250 kW. Hraðhleðslustöðvar eru aðgengilegar víða um land og aðilum sem bjóða upp á hleðslu rafbíla fer stöðugt fjölgandi. Hægt er að sjá kort yfir hleðslustöðvar á plugshare.com eða á heimasíðum þjónustuaðila. Hleðslulyklar fylgja ekki með rafbílum Bílaleigu Akureyrar.


7-22kW Hleðslustöðvar AC (Hentar rafbílum og tengiltvinnbílum)

Við mælum með að alltaf séu notaðar viðurkenndar, fasttengdar hleðslustöðvar við hleðslu rafbíla. Hleðslustöðvar sem þessar eru orðnar nokkuð algengar við fyrirtæki, heimahús og á ýmsum opinberum stöðum og þær eru með áföstum hleðslukapli eða með tengi fyrir lausan hleðslukapal. Algengt er að þessar stöðvar séu 22kW og þær henta mjög vel til hleðslu rafbíla og tengiltvinnbíla. Reikna má með að það taki 5-10 klst. að fullhlaða flesta rafbíla en 3-4 klst ef um tengiltvinnbíla er að ræða.
Hleðslutími fer eftir hleðslugetu bíls þ.e.a.s. hversu mikið rafmagn þeir geta tekið inn á sig í AC hleðslu og stærð rafhlöðu. Flestir rafbílar eru með 7-11 kW hleðslugetu í AC hleðslu en tengiltvinnbílar 3,3 - 3,7 kW hleðslugetu.

50-250kW hraðhleðslustöðvar DC (Hentar rafbílum)

DC hraðhleðsla eru sérhæfðar hraðhleðslustöðvar með áföstum hleðslukapli. 50-150 kW hraðhleðslustöðvar eru algengar en stærri hleðslustöðvum150-250 kW fjölgar ört. Fjölmörg fyrirtæki starfrækja hraðhleðslustöðvar en greiðsluleiðir eru misjafnar og hægt er að kynna sér þær leiðir sem í boði eru á heimasíðum þjónustuaðila.

Neyðarhleðsla með sérstöku hleðslutæki frá framleiðanda bifreiða

Rafbílum fylgir hleðslukapall með áföstu stýriboxi frá framleiðanda sem ætluð er í neyðartilfellum þar sem ekki er hægt að komast í aðra hleðslu.
Huga þarf sérstaklega að því að hefðbundnir tenglar henta ekki til hleðslu rafbíla með umræddum köplum. Slík notkun getur haft í för með sér ofhitnun og bruna og þess vegna mælum við alltaf með notkun hleðslustöðva eins og talað var um hér ofar.
Einnig bendum við á upplýsingar á vef húsnæðis og mannvirkjastofnunar.

 

Tengiltvinnbílar / Plug-in Hybrid

Tengiltvinnbílar / Plug-in Hybrid (PHEV) eru bæði knúnir af rafmótor og bensín-eða dísilvél og hægt er að hlaða rafhlöðuna með því að stinga bílnum í samband við hleðslustöð. Þetta er góður kostur fyrir þá sem yfirleitt aka stuttar vegalengdir en vilja ekki vera eingöngu háðir rafmagni á lengri vegalengdum og geta þá nýtt hefðbundið eldsneyti, bensín eða diesel. Drægni okkar tengiltvinnbíla á rafmagni er á bilinu 30-60 kílómetrar á einni hleðslu. Vegna langs hleðslutíma tengiltvinnbíla getum við því miður ekki tryggt að þeir séu hlaðnir við afhendingu.

Dæmi um tengiltvinn bíla:


MMC Eclipse Cross PHEV


Kia Niro PHEV

 


Hvernig fer hleðsla tengiltvinnbíla fram?

Hleðsla tengiltvinnbílar fer fram á sama hátt og rafbíla en þó er mikilvægt að nefna það að þessir bílar taka flestir ekki hraðhleðslu og því ekki hægt að nota hraðhleðslustöðvar við hleðslu. Eina undantekningin í okkar flota er MMC Outlander PHEV, en þrátt fyrir að hann taki hraðhleðslu mælum við með því að þeir séu hlaðnir með fasttengdri hleðslustöð.


Tvinnbílar / Hybrid (HEV)

Tvinnbílar (Hybrid) eru knúnir bæði rafmótor og bensín-eða dísilmótor sem vinna saman að því markmiði að lágmarka eldsneytiseyðslu á hverjum tíma. Eldsneytismótorinn hleður inn á rafhlöðuna þegar hann er í notkun en einnig hleðst inn á rafhlöðuna þegar bremsað er. Rafmagnið er nýtt þegar ekið er af stað eða ef ekið er á jöfnum hraða en eldsneytið kemur inn þegar raforkan dugar ekki ein og sér til að knýja bílinn áfram. Ekki er hægt að hlaða Tvinnbíla með því að stinga þeim í samband.